Íþróttir

true

Skallagrímur tapaði gegn Breiðabliki

Skallagrímur varð að lúta í lægra haldi gegn Breiðabliki, 84-68, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik á föstudag. Skallagrímur lék án landsliðskonunnar Sigrúnar Sjafnar Ámundadóttur, sem fór úr axlarlið í leik gegn Val á miðvikudag. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en Breiðablik náði undirtökunum eftir því sem leið á fyrsta…Lesa meira

true

Fjórir fulltrúar frá Akranesi á NM í sundi

Sundfélag Akranes átti þrjá sundmenn í íslenska landsliðinu sem keppti á Norðurlandameistarmóti sem fram fór um helgina í Laugardalslauginni. Það voru þau Ágúst Júlíusson, Sævar Berg Sigurðsson og Brynhildur Traustadóttir. Alls tóku 193 sundmenn frá níu löndum þá á mótinu. Auk þess var Skagakonan Inga Elín Cryer, sem æfir og keppir með Ægi, í landsliðinu.…Lesa meira

true

Kristen með fjórfalda tvennu í sigri Snæfells

Snæfell batt enda á fimm leikja taphrinu á heimavelli með góðum sigri á botnliði Njarðvíkur, 76-62, þegar liðin mætust í Domino‘s deild kvenna í gær. Kristen McCarthy, leikmaður Snæfells, skráði sig í sögubækur íslensks körfubolta í leiknum því hún setti upp fjórfalda tvennu; 31 stig, 15 fráköst, tíu stoðsendingar og tólf stolnir boltar. Aðeins sex…Lesa meira

true

Ísland í sterkum riðli á HM

Rétt í þessu var dregið var í riðla fyrir Heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu sem fram fer í Rússlandi næsta sumar. Íslenska karlalandsliðið leikur þar á sínu fyrsta heimsmeistaramóti. Ísland dróst í D riðil, ásamt Argentínu, Króatíu og Nígeríu. Upphafsleikur mótsins verður leikinn 14. júní á Luzhniki-vellinum í Mosvku. Þar mæta gestgjafarnir Rússar liði Sádí Arabíu. Fyrsti…Lesa meira

true

Útvarp Akranes komið í loftið

Það er orðinn fastur liður þegar aðventan gengur í garð á Akranesi að Sundfélag Akraness setji Útvarp Akraness í loftið. Það verður að þessu sinni dagana 1. – 3. desember, fyrstu helgina í aðventu. Að venju verður boðið upp á fjölbreytta útvarpsdagskrá, efni fyrir alla aldurshópa bæði tónlist og viðtalsþætti sem snúa að daglegum málum…Lesa meira

true

Snæfell hrifsaði til sín sigurinn

Snæfell vann góðan útisigur á liði FSu, 98-102, í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Selfyssingar höfðu undirtökin lungann úr leiknum en Snæfell náði forystunni í fjórða leikhluta og náði að hrifsa til sín sigurinn eftir æsispennandi lokamínútur. Heimamenn voru heldur sprækari í fyrsta leikhluta. Gott flæði var í sóknarleik þeirra og þeir höfðu…Lesa meira

true

Snæfell vann góðan sigur á Haukum

Snæfell vann góðan útisigur á Haukum, 68-77, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Snæfellskonur höfðu yfirhöndina bróðurpart leiksins en Haukar hleyptu þeim aldrei frá sér. Með yfirveguðum leik á lokasprettinum náði Snæfell hins vegar að sigla sigrinum heim. Jafnræði var með liðunum í upphafi en Snæfell hafði heldur undirtökin. Haukar…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði fyrir Val

Skallagrímur tapaði naumlega fyrir Val, 79-82, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í gærkvöldi. Leikurinn fór fram í Borgarnesi en það voru gestirnir sem höfðu undirtökin frá fyrstu mínútu. Valsliðið byrjaði leikinn af miklum krafti og náði tíu stiga forskoti strax um miðjan upphafsfjórðunginn, 8-18. Það var þá sem Skallagrímskonur urðu fyrir áfalli þegar…Lesa meira

true

Sigrún fór úr axlarlið

Körfuknattleikskonan Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, leikmaður Skallagríms og íslenska landsliðsins, meiddist illa í viðureign Skallagríms og Vals í Domino‘s deild kvenna í gærkvöldi. Sigrún fór úr axlarlið og þurfti að koma henni undir læknishendur á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi, þar sem hún fór í myndatöku áður en handleggnum var nuddað aftur í liðinn. Að sögn Ragnheiðar…Lesa meira

true

Unnur Ýr endurnýjar samning sinn við ÍA

Knattspyrnukonan Unnur Ýr Haraldsdóttir hefur samið að nýju við ÍA og mun leika með liðinu í 1. deild kvenna næsta sumar. Unnur er 23 ára gömul og hefur leikið allan sinn feril með ÍA. Hún steig sín fyrstu skref með meistaraflokki árið 2009, þá ekki orðin 15 ára gömul. Síðan þá hefur hún leikið óslitið…Lesa meira