
Sundfélag Akranes átti þrjá sundmenn í íslenska landsliðinu sem keppti á Norðurlandameistarmóti sem fram fór um helgina í Laugardalslauginni. Það voru þau Ágúst Júlíusson, Sævar Berg Sigurðsson og Brynhildur Traustadóttir. Alls tóku 193 sundmenn frá níu löndum þá á mótinu. Auk þess var Skagakonan Inga Elín Cryer, sem æfir og keppir með Ægi, í landsliðinu.…Lesa meira








