Fréttir

true

Gleði- og gúmmelaðisprengja í Vinaminni

Kalman, tónlistarfélag Akraness og Kór Akraneskirkju taka höndum saman og halda kaffihúsakvöld í Vinaminni fimmtudagskvöldið 13. nóvember kl. 20. „Þetta verður árleg og rómuð gleði- og gúmmulaði sprengja,“ segir í tilkynningu. Fram koma, ásamt Kór Akraneskirkju, Flosi Einarsson píanóleikari, Matthías Stefánsson fiðluleikari og Sigurþór Þorgilsson bassaleikari. Stjórnandi er Hilmar Örn Agnarsson. „Boðið verður upp á…Lesa meira

true

Könnuðu dvalar- og atvinnuleyfi

Lögreglan á Vesturlandi hefur á þessu ári farið í nokkrar eftirlitsferðir um umdæmið með fulltrúum Skattsins og Vinnueftirlitsins. Farið hefur verið á byggingasvæði, veitinga- og gististaði og önnur ferðaþjónustufyrirtæki. Helstu verkefni lögreglu í þessu eftirliti er eftirlit með dvalar- og atvinnuréttindum starfsfólks og svo rekstrarleyfum fyrirtækja. Í síðustu viku var farið á Snæfellsnes og athugað…Lesa meira

true

Malbiksframkvæmdir á Akranesvegi á morgun

Vegagerðin hefur gefið Colas heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir: „Miðvikudaginn 12. nóvember er stefnt á malbikunarframkvæmdir á Akranesvegi. Veginum verður lokað á milli Innnesvegar og Akrafjallsvegar. Hjáleið verður um Innnesveg. Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp skv. viðhengdri merkingaráætlun. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 09:00 til kl. 17:00 miðvikudaginn 12.…Lesa meira

true

Veitur segjast vera að vinna að lausn vegna Grábrókarveitu

Skessuhorni barst í dag skriflegt svar frá samskiptastýru Veitna vegna fréttar hér á vefnum í gær um neysluvatnsmál í Grábrókarveitu. Þar segir: „Veitum þykir miður að erindi Vilhjálms Hjörleifssonar, íbúa á Varmalandi í Borgarfirði, frá 20. október hafi ekki verið svarað. Það voru mistök af okkar hálfu og okkur þykir það leitt. Við höfum verið…Lesa meira

true

Afrekssjóður leitar umsókna

Afrekssjóður Hvalfjarðarsveitar leitar nú umsækjenda um styrki úr sjóðnum. Afreksstyrkirnir eru ætlaðir til þess að styðja við bakið á afreksfólki sem lögheimili í Hvalfjarðarsveit. Í reglum sjóðsins segir að umsækjandi þurfi að hafa skarað fram úr og/eða hafa fengið viðurkenningu fyrir störf eða afrek á sviði íþrótta. Þá veitir sjóðurinn einnig styrki vegna þátttöku í…Lesa meira

true

Atvinnuleysi jókst í október

Atvinnuleysi á Vesturlandi í október var um 2,6% og hafði því aukist um 8,33% á milli mánaða, en það var 2,2% í september. Atvinnuleysi á landinu öllu var í október 3,9% en var 3,5% í september. Alls voru 274 manns atvinnulausir á Vesturlandi í október þar af 151 karl og 123 konur en mánuðinn á…Lesa meira

true

Ný húsaleigulög eiga að bæta réttarvernd leigjenda

Alþingi samþykkti í gær frumvarp Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, um breytingu á húsaleigulögum. Lögunum er ætlað að auka réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda með því að stuðla að aukinni langtímaleigu og fyrirsjáanleika um breytingar á leigufjárhæð. Þeim er einnig ætlað að bæta upplýsingar um leigumarkaðinn með almennri skráningu leigusamninga og auknu gagnsæi um upplýsingar í…Lesa meira

true

Skagamenn ofarlega í tvímenningi í keilu

Íslandsmeistaramótinu í tvímenningi í keilu lauk á sunnudaginn í Egilshöll. Hafþór Harðarson (ÍR) og Gunnar Þór Ásgeirsson (ÍR) urðu Íslandsmeistarar. Þeir voru efstir eftir undankeppni laugardagsins og héldu forustunni í gegnum undanúrslitin. Mikael Aron Wilhelmsson (ÍR) og Ásgeir Karl Gústafsson (KFR) urðu í öðru sæti. Í þriðja sæti urðu feðgar frá Akranesi, þeir Sigurður Þorsteinn…Lesa meira

true

Umferð jókst á Vesturlandi en minnkaði á Hringveginum

Umferð á Hringveginum í október dróst talsvert mikið saman, eða um 2,5%. Þetta er annar mánuðurinn í röð þar sem umferð minnkar og fjórði mánuðurinn á árinu. Þetta kemur fram í tölum frá Vegagerðinni. Áætlað er að umferðin í ár aukist lítillega eða um 0,5-1,0% sem er mun minni aukning en að meðaltali liðin ár.…Lesa meira

true

Dalabyggð og Bríet semja um uppbyggingu og leiguvernd

Sveitarstjórn Dalabyggðar og Leigufélagið Bríet hafa gert með sér samkomulag sem felur í sér að Bríet byggir parhús við Borgarbraut 4 í Búðardal en sveitarfélagið ábyrgist ákveðna leiguvernd gagnvart Bríeti sem virkjast ef ekki fást leigjendur í húsnæðið. Eins og fram hefur komið í fréttum Skessuhorns reisti Leigufélagið Bríet fyrr á þessu ári parhús við…Lesa meira