
Efstu þrjú liðin. F.v. Ásgeir, Mikael, Hafþór, Gunnar, Sigurður og Matthías. Ljósm. kli.is
Skagamenn ofarlega í tvímenningi í keilu
Íslandsmeistaramótinu í tvímenningi í keilu lauk á sunnudaginn í Egilshöll. Hafþór Harðarson (ÍR) og Gunnar Þór Ásgeirsson (ÍR) urðu Íslandsmeistarar. Þeir voru efstir eftir undankeppni laugardagsins og héldu forustunni í gegnum undanúrslitin. Mikael Aron Wilhelmsson (ÍR) og Ásgeir Karl Gústafsson (KFR) urðu í öðru sæti. Í þriðja sæti urðu feðgar frá Akranesi, þeir Sigurður Þorsteinn Guðmundsson og Matthías Leó Sigurðsson (KFA). Matthías Leó var í öðru sæti einstaklinga báða dagana.