Fréttir

true

Kennarar og nemendur í FVA mættu í gulu

Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðheilbrigði og sjálfsvígsforvörnum. Á síðastliðnu ári var í fyrsta skipti heill mánuður tileinkaður þessu brýna málefni á Íslandi. Haustið er valið fyrir átakið vegna þess að Alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga er 10. september og Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er 10. október. Lögð verður áhersla á slagorðin; „Er…Lesa meira

true

Snitzel var ranglega merkt eldað

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar um innköllun á tveimur framleiðslulotum af Ali snitzel frá Síld og fiski vegna rangra merkinga en fyrir mistök var snitzel sem þarfnast eldunar pakkað í umbúðir fyrir fulleldað. Fyrirtækið hefur í samráði við Matvælastofnun innkallað vöruna. Innköllunin á eingöngu við framleiðslulotur: 02.09.24 og 04.09.24, Best fyrir 23.09.24 og 25.09.24. Varan var…Lesa meira

true

Snjókoma og leiðindaveður á leitarfólki

Sauðfjárleitir fara nú fram víðs vegar um landið. Á Norðurlandi var talsvert um að leitum hafi verið flýtt þar sem mjög slæmt veður er þar og appelsínugul viðvörun. Hópur Lunddælinga hélt í leitir í gær. Í morgunsárið var orðin bálhvasst og nokkur snjókomu en einn leitarmanna sendi Skessuhorni mynd af aðstæðum á fjallinu. Réttað verður í…Lesa meira

true

Fyrsta áfanga framkvæmda á Sæunnargötu að ljúka

Fyrsti áfangi við endurbyggingu Sæunnargötu í Borgarnesi er nú á lokametrunum, en verkið er unnið af Borgarverki. Á heimasíðu Borgarbyggðar er sagt frá því að nú taki við annar verkhluti sem er efri hluti Sæunnargötu og sú hjáleið sem er um Kveldúlfsvöll og Berugötu verður lokað.Lesa meira

true

Íbúum boðið á þing til að hafa áhrif á þróun Vesturlands

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi boða í næstu viku til íbúaþings þar sem til umfjöllunar verður endurskoðun Sóknaráætlunar Vesturlands. Þingið verður haldið í Hjálmakletti í Borgarnesi miðvikudaginn 18. september klukkan 16 og áætlað að það standi til kl. 18. Bent er á að nauðsynlegt er að skrá þátttöku (sjá nánar ssv.is), en boðið verður upp á…Lesa meira

true

Íþróttasalurinn á Vesturgötu tekinn í notkun í næstu viku

Samkvæmt áætlun verður íþróttasalurinn á Vesturgötu tekinn til notkunar þriðjudaginn 17. september en íþróttasal og kjallara var lokað með litlum fyrirvara í lok september á síðasta ári vegna loftgæðavandamála. Útskipting á hurðum og uppsetning á loftræstisamstæðunni sem og utanhússklæðningunni verður lokið ef allar áætlanir standast í lok september. Að sögn Önnu Maríu Þráinsdóttur, sem er…Lesa meira

true

Afhentu Von rúmar fjórar milljónir í minningu Péturs Sigurðssonar

Í vikunni sem leið fékk Von, félag til styrktar skjólstæðingum gjörgæsludeildar Landspítala í Fossvogi, afhentar 4,1 milljón króna að gjöf frá fjölskyldu, vinum, samstarfsmönnum Péturs Sigurðsson frá Akranesi, golfklúbbnum Leyni og öðrum velunnurum. Pétur lést á gjörgæslunni í Fossvogi í júní síðastliðnum í kjölfar vinnuslyss. Söfnunin fór fram í gegnum hlaupahóp í nafni Péturs í…Lesa meira

true

Þrálát rafmagnsbilun í Grundarfirði

Ekki tókst að ljúka viðgerð í aðveitustöð Rarik í Grundarfirði í gær. Varaafl var því keyrt í nótt og í dag, þar til viðgerð lýkur. Rarik óskar eftir að fólk fari sparlega með rafmagn á meðan. Send verður tilkynning þegar viðgerð er lokið. Frekari upplýsingar veitir bilanavakt stjórnstöðvar í síma 528-9000. Allar tilkynningar má sjá…Lesa meira

true

Mesti þéttleiki sandsíla frá upphafi mælinga

Sandsíli hafa verið vöktuð frá árinu 2006 en 30. ágúst síðastliðinn lauk leiðangri rannsóknaskipsins Bjarna Sæmundssonar þar sem rannsakað var ástand sjávar, sæbjúgna og sandsília. Þetta kemur fram á heimasíðu Hafrannsóknastofnunar Íslands. Sýni voru tekin á þremur svæðum; Faxaflóa, Vestmannaeyjum að Vík í Mýrdal og við Ingólfshöfða. Í Faxaflóa var magn sandsíla svipað og það…Lesa meira