Fréttir

true

Drög að stjórnunar- og verndaráætlun rjúpu

Umhverfisstofnun hefur birt drög að stjórnunar- og verndaráætlun rjúpu. Þetta er í fyrsta skipti sem slík áætlun er gefin út fyrir dýrastofn hér á landi. Í áætluninni er nýtt kerfi veiðistjórnunar kynnt, en í því felst meðal annars að veiðistjórnun verður svæðisbundin þar sem landinu er skipt í sex hluta. Auk þess hafa ný stofnlíkön…Lesa meira

true

Prjónahópur á Bifröst færði Vökudeild Landspítalans hlýja gjöf

Undanfarna tvo vetur hefur hópur fólks komið saman á Bifröst til að prjóna. Fyrir verkefninu stóð Guðrún Sigurjónsdóttir bóndi á Glitstöðum. Prjónahópur þessi á Bifröst var skipaður erlendum íbúum sem búsettir eru á Bifröst og flóttafólki. „Við ákváðum í vetur að prjóna húfur og teppi fyrir vökudeild Landspítalans og svo fyrir sambærilega deild á spítala…Lesa meira

true

Meðalumferð á dag í júnímánuði

Vegagerðin gaf nýverið út upplýsingar um meðalumferð á nokkrum lykil-teljurum um hringveg Íslands. Á Vesturlandi eru nokkrir lykil-teljarar en einnig eru teljarar á helstu stofnvegum svæðisins. Umferðartölur frá 2023 og 2024 standa nokkuð í stað en helstu tölur eru þessar: Hringvegur um Hvalfjarðargöng: Meðalumferð á dag 10.589 bílar. Hringvegur um Hafnarfjall: Meðalumferð á dag 7.246…Lesa meira

true

Styrkir til að jafna stöðu tónlistarnema

Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga að úthlutun framlaga til eflingar tónlistarnáms og jöfnunar á aðstöðumun nemenda skólaárið 2024-2025. Úthlutunin, sem nemur 707,1 milljónum króna, fer fram á grundvelli 2. mgr. 1. gr. reglna um framlög vegna hljóðfæranáms á framhaldsstigi og söngnáms á mið- og framhaldsstigi. Akraneskaupstaður fékk úthlutað rúmum 10,6 milljónum…Lesa meira

true

Írskir dagar 2024 – myndasyrpa

Bæjarhátíðin Írskir dagar á Akranesi fór fram í síðustu viku. Fyrsti formlegi dagskrárviðburðurinn var á þriðjudeginum. Síðan þéttist dagskráin smám saman og náði hápunkti á laugardagskvöldinu þegar brekkusöngur var á Þyrlupallinum og í kjölfarið Lopapeysan við höfnina. Dagskráin endaði svo á sýningu í Garðalundi í gær þar sem Leikhópurinn Lotta kom fram. Óhætt er að…Lesa meira

true

Klúbbmeistarar Golfklúbbs Borgarness krýndir

Um liðna helgi fór meistaramót Golfklúbbs Borgarness fram. Alls voru 67 keppendur skráðir til leiks en keppendum var skipt niður í 12 flokka. Keppni hófst miðvikudaginn 3. júlí og lauk með lokahófi og verðlaunaafhendingu á Hótel Hamri á laugardaginn. Klúbbmeistarar Golfklúbbs Borgarness 2024 eru Hlynur Þór Stefánsson og Margrét Katrín Guðnadóttir.Lesa meira

true

Bjarki endaði í 23. sæti á sterku móti

Atvinnukylfingurinn Bjarki Pétursson keppti á On Tee Grand Prix í golfi um liðna helgi. Byrjað var að spila á Laholm golfvellinum, sem er rétt fyrir utan Malmö í Svíþjóð á fimmtudag. Bjarki lék fyrsta hring mótsins á 70 höggum, annan hring á 65 höggum en þann síðasta á 70 höggum. Hann endaði því samtals á…Lesa meira

true

Ráðherra var afhent yfirlýsing héraðsfréttamiðla

Í gær fór fram málþing í Vestmannaeyjum í tilefni þess að Eyjafréttir fagna fimmtíu ára afmæli um þessar mundir, en miðillinn hefur nú verið sameinaður fréttamiðlinum eyjar.net. Fyrir þingið höfðu fulltrúar sex landshlutamiðla samþykkt áskorun sem afhent var Lilju D. Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, en hún fer fyrir þessum málaflokki í Stjórnarráðinu. Í áskoruninni kemur…Lesa meira

true

Náttúrufræðistofnun verður staðsett á Vesturlandi

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan höfuðborgarsvæðisins samkvæmt ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Þetta kemur fram á vefsíðu ráðuneytisins. Embætti forstjóra nýrra stofnana verða auglýst um helgina og mun forstjóri nýrrar Umhverfis- og orkustofnunar hafa aðsetur á Akureyri, forstjóri nýrrar Náttúrufræðistofnunar á Vesturlandi og forstjóri nýrrar Náttúruverndarstofnunar á Hvolsvelli.…Lesa meira

true

Tapleikur Reynis í Kópavogi

Reynir frá Hellissandi mætti Smára í B riðli 5. deildar karla í knattspyrnu í gær. Leikurinn fór fram í Fagralundi í Kópavogi. Smári var fyrir leikinn í þriðja sæti deildarinnar á meðan Reynir sat í áttunda sætinu. Liðin mættust í byrjun móts en sá leikur endaði með1-1 jafntefli. Fyrri hálfleikur bauð upp á mikla markasúpu.…Lesa meira