Fréttir

true

Yfirlýsing bæjarstjórnar vegna gjaldþrots Skagans 3X

Bæjarstjórn Akraness var að senda frá sér yfirlýsingu vegna tíðinda morgunsins þess efnis að Skaginn 3X hafi óskað eftir gjalþrotaskiptum. „Þungar fréttir berast nú úr atvinnulífinu hér á Akranesi, en Skaginn 3X hefur óskað eftir að fyrirtækið verði tekið til gjaldþrotaskipta. Þetta rótgróna fyrirtæki hefur um árabil verið eitt stærsta og glæsilegasta fyrirtæki bæjarins og…Lesa meira

true

Bágbornar vegmerkingar á enn verri vegum

Sveitarstjóri Dalabyggðar hefur áframsend til forsvarmanna Vegagerðarinnar ljósmyndir af ástandi vega í sveitarfélaginu. Myndirnar tók vegfarandi um nýverið átti leið um þjóðveg 60 frá Bröttubrekku og í Búðardal. „Viðkomandi hafði orð á því að það væri ekki á það bætandi að keyra þessa þröngu vegi, með ástand þeirra eins og það er, en þar hafa…Lesa meira

true

Tökum lokið í Hvalfjarðarsveit

Baltasar Kormákur og hans framleiðslulið hafa lokið tökum á þáttaröðinni King and Conqueror í Hvalfjarðarsveit. Þættirnir eru unnir fyrir sjónvarpsstöðvarnar CBS og BBC og fóru tökur fram fyrr í vikunni. Um er að ræða miðaldasjónvarpsseríu sem byggir á sögu Vilhjálms sigursæla og Haraldar II. Englandskonungs sem voru uppi á elleftu öld. Framleiðslulið Baltasar hafði komið…Lesa meira

true

Kári á toppnum eftir öruggan sigur á Augnabliki

Káramenn frá Akranesi gerðu góða ferð í Kópavoginn í gærkvöldi og lögðu þar lið Augnabliks örugglega að velli 5:2 í leik í þriðju deild karla í knattspyrnu. Marinó Hilmar Ásgeirsson kom Káramönnum á bragðið með marki strax á 15. mínútu en heimamenn í Augnabliki svöruðu snarlega fyrir sig og skoruðu næstu tvö mörk og leiddu…Lesa meira

true

98 oktana bensín nú aftur fáanlegt í Borgarnesi

98 oktana bensín hefur á þessu ári eingöngu verið fáanlegt hjá N1 í Borgarnesi, þ.e.a.s hér á Vesturlandi. Það er einnig fáanlegt á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Tankurinn fyrir bensínið í Borgarnesi bilaði hins vegar fyrir um mánuði síðan en komst aftur í lag í dag, að sögn Magnúsar Fjeldsted stöðvarstjóra N1.Lesa meira

true

Bjarki Pétursson keppir í Svíþjóð

Atvinnukylfingurinn Bjarki Pétursson er þessa dagana að keppa á On Tee Grand Prix í golfi en byrjað var að spila á Laholm golfvelli, sem er rétt fyrir utan Malmö í Svíþjóð. Bjarki lék fyrsta dag mótsins á 70 höggum en hann fer annan hring núna klukkan 14:10. Næsta mót Bjarka er svo í Kungsbacka golfvellinum,…Lesa meira

true

Viljayfirlýsing undirrituð um nýja heilsugæslustöð á Akranesi

Í morgun skrifaði bæjarstjóri Akraneskaupstaðar, fjármálaráðherra og heilbrigðisráðherra undir viljayfirlýsingu þess efnis að ráðist verði í byggingu nýrrar heilsugæslustöðvar á Akranesi. Henni verður fundinn staður í nýju húsi sem byggt verður við Mánabraut 20 en á þeirri lóð er nú fyrrum skrifstofubygging Sementsverksmiðjunnar. Það hús verður rifið og byggt á lóðinni hús á nokkrum hæðum…Lesa meira

true

Óskað hefur verið eftir gjaldþrotaskiptum Skagans 3X

Starfsfólki Skagans 3X var tilkynnt á fundi í morgun að stjórn fyrirtækisins hefur ákveðið að óska eftir gjaldþrotaskiptum. Hjá fyrirtækinu hafa að undanförnu verið hátt í 130 starfsmenn. Í bréfi sem Jeff Davis forstjóri ritar starfsfólki kemur fram að undanfarna mánuði hefur verið lögð mikil vinna í fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækisins og meðal annars verið leitað…Lesa meira

true

Húsfyllir á tónleikunum Írska hjartað

Mikil og góð stemning var á tónleikunum Írska hjartað sem fóru fram í Bíóhöllinni á Akranesi í gærkvöldi. Þar tók tónlistarfólk úr bæjarfélaginu sig saman og flutti írska tónlist. Meðal annars átti Þjóðlagasveitin skemmtilega endurkomu. Húsfyllir var á samkomuna og „geggjuð stemning,“ eins og gestir komust að orði. Meðfylgjandi ljósmynd tók Fjóla ÁsgeirsdóttirLesa meira

true

Umhverfisspjall í Grundarfirði

Það var margt um manninn á mánudaginn þegar boðið var í umhverfisspjall í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði. Umræður fóru fram um það sem íbúum liggur á hjarta þegar kemur að umhverfismálum, snyrtimennsku, framkvæmdum, gæðum í bæjarumhverfinu og fleira. Bæjarstjóri og starfsfólk Grundarfjarðarbæjar voru með kynningar á ýmsum verkefnum sem eru framundan og tóku þau vel í…Lesa meira