Fréttir

true

Hamar vann sigur á ÍA eftir framlengingu

Lið Hamars og ÍA mættust í 8. umferð fyrstu deildar karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Hveragerði. Liðin voru bæði í efri hluta deildarinnar, Skagamenn voru í þriðja sæti með 10 stig og Hamar þar á eftir ásamt KV og Breiðabliki með 8 stig. Skagamenn voru sterkari á fyrstu mínútunum og…Lesa meira

true

Lionsklúbbur Grundarfjarðar bauð upp á blóðsykursmælingu

Í gær bauð Lionsklúbbur Grundarfjarðar upp á blóðsykursmælingu í Kjörbúðinni í Grundarfirði. Mælingin fór fram á milli 16:00 og 18:00 þegar flestir bæjarbúar leggja leið sína í búðina. Vel var mætt og höfðu sjúkraflutningamennirnir Þorkell Máni og Tómas Freyr í nógu að snúast á meðan þeir mældu bæjarbúa. Það er afskaplega mikilvægt að fylgjast með…Lesa meira

true

Leirulækur er ræktunarbú Borgfirðings 2024

Uppskeruhátíð hestamannafélagsins Borgfirðings var haldin í gær. Þar voru afhent verðlaun fyrir efstu kynbótahross í hverjum flokki og efstu knapa. Ræktunarbú ársins á félagssvæðinu er Leirulækur á Mýrum. Íþróttamaður Borgfirðings 2024 er Flosi Ólafsson. Stigahæstu knapar Barnaflokkur: Svandís Svava Halldórsdóttir Unglingaflokkur: Kristín Eir Holaker Hauksdóttir Ungmennaflokkur: Katrín Einarsdóttir Áhugamannaflokkur: Ámundi Sigurðsson Opinn flokkur: Flosi Ólafsson…Lesa meira

true

Fjölmenni á baráttufundi kennara

Síðdegis í gær komu kennarar á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit saman til baráttufundar í Fjölbrautaskóla Vesturlands. Vildu þeir með fundinum sýna samstöðu og þétta hópinn í kjarabaráttu sinni. Eins og kunnugt er hefur hvorki gengið né rekið í viðræðum Kennarasambandsins við fulltrúa ríkis og sveitarfélaga. Verkfallsaðgerðir hafa staðið í nokkrum skólum frá því í lok…Lesa meira

true

Ljósakrossar Lionsklúbbsins á aðventunni

„Ágætu Akurnesingar og aðrir velunnarar Lionsklúbbs Akraness! Nú fer að líða að aðventunni og þá hefjumst við Lionsmenn handa í kirkjugarðinum. Að þessu sinni byrjum við laugardaginn 30. nóvember og verðum í garðinum frá kl. 11 til 15.30.  Því næst sunnudaginn 1. desember frá kl. 13.00 til 15.30. Við verðum síðan laugardaginn 7. desember frá…Lesa meira

true

Kuldinn truflar merkingar á sorptunnum

Eins og kom fram í Skessuhorni á dögunum hófst dreifing á sorptunnum á heimili á Akranesi um miðjan nóvember og tók Björgunarfélag Akraness að sér það verk. Fram kemur á vef Akraneskaupstaðar að Björgunarfélagið hefur lokið við að dreifa tunnum í fjórum af sex hverfum bæjarins og stefnir á að ljúka dreifingu í næstu viku…Lesa meira

true

Koma skemmtiferðaskipa til landsins í góðu jafnvægi

Ferðamálastofa hefur aflað upplýsinga um komur skemmtiferðaskipa til sex stærstu hafna landsins, áætlaðar tekjur af þeim fyrir þetta ár og áætlað tekjur fyrir það næsta. Grundarfjarðarhöfn tók á móti 64 skemmtiferðaskipum á þessu ári og voru farþegar 47.776. Tekjur Grundarfjarðarhafnar voru 83 milljónir króna. Faxaflóahafnir höfðu mestar tekjur af skipum; 1.699 milljónir króna fyrir árið…Lesa meira

true

Níutíu ára Einarsbúð er elsta matvöruverslun landsins

„Við stöndum í mikilli þakkarskuld við fólkið hér í bænum“ Í dag er haldið upp á 90 ára afmæli Einarsbúðar við Skagabraut 9-11 á Akranesi. Verslunin hefur frá upphafi verið rekin af sömu fjölskyldu og í stafninum standa nú sem áður hjónin Einar Ólafsson og Erna Guðnadóttir. Boðið var upp á kaffi og kökur í…Lesa meira

true

Verkfall boðað í Grundaskóla á Akranesi 6. janúar

Félagsfólk Kennarasambands Íslands í Egilsstaðaskóla, Engjaskóla, Grundaskóla á Akranesi og Lindaskóla hefur samþykkt, með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða, boðun verkfalls 6. janúar 2025 hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma. Félagsmenn í Félagi grunnskólakennara (FG) og Skólastjórafélagi Íslands (SÍ), sem starfa í fyrrnefndum skólum, greiddu atkvæði um verkfallsboðunina. Atkvæðagreiðsla stóð dagana 19. nóvember – 21. nóvember.…Lesa meira

true

Upplestur grunnskólanemenda í Brún

Nemendur úr Grunnskóla Borgarfjarðar heimsóttu félaga í Félagi aldraðra í Borgarfjarðardölum í gær. Tilefni heimsóknarinnar var dagur íslenskrar tungu  sem var 16. nóvember á fæðingardegi skáldsins Jónasar Hallgrímssonar. Þetta er skemmtilegur siður sem vonandi lifir sem lengst og er bæði ungum sem öldnum hin besta skemmtan. Að þessu sinni mættu sjö ungmenni frá starfsstöðvunum þremur;…Lesa meira