Fréttir

true

Kjördæmaþáttur frá Norðvesturkjördæmi sýndur beint annað kvöld

Ríkisútvarpið verður með kjördæmaþátt í beinni útsendingu á RÚV 2 á morgun, miðvikudaginn 20. nóvember. Stefnt er að því að þátturinn verði einnig sendur út í beinni útsendingu hér á vef Skessuhorns. Útsending hefst klukkan 18:10 og stendur yfir til kl. 20:00. Þátturinn verður sendur út frá bæjarþingsalnum Dalbraut 4 á Akranesi. Umsjónarmenn verða fréttamennirnir…Lesa meira

true

Frambjóðendur á ferð og flugi

Það er í mörg horn að líta hjá frambjóðendum þeirra tíu flokka sem bjóða fram krafta sína í Norðvesturkjördæmi í alþingiskosningunum eftir tíu daga. Aðdragandi stjórnarslita var skammur og raunverulegur tími til undirbúnings málefnavinnu og að koma boðskap sínum á framfæri sömuleiðis. Frambjóðendur eru því á ferð og flugi, hitta kjósendur á fundum eða á…Lesa meira

true

Samkeppniseftirlitið vill stöðva alla gjörninga um sameiningu afurðastöðva

Í tilefni af dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í gær, þess efnis að breyting Alþingis á búvörulögum var dæmd ólögmæt, hefur Samkeppniseftirlitið ritað bréf til allra afurðastöðva og samtaka þeirra þess efnis að horfið verði frá samruna í greininni án aðkomu Samkeppniseftirlitsins. Samkvæmt dómi héraðsdóms samræmdust undanþáguheimildir búvörulaga ekki stjórnskipunarlögum og öðluðust því ekki lagagildi. „Vegna þessa…Lesa meira

true

Gústi sterki og hefnd hafsins bar sigur úr býtum

Frostbiter fór fram á Akranesi um helgina Hryllingsmyndahátíðin Frostbiter var haldin á Akranesi í níunda skiptið um liðna helgi. Hún hófst á Vesturgötu 48 (gamla Kiwanis salnum), með sýningu á myndinni Clownie & The Satanic Cult. Leikstjóri myndarinnar, Bjarni Gautur, sat svo fyrir svörum eftir sýningu myndarinnar. Um kvöldið var uppistand og hryllings barsvar (pubquiz)…Lesa meira

true

Fjölgreindarleikar á Varmalandi

Í Grunnskóla Borgarfjarðar á Varmalandi var síðasti fimmtudagur tileinkaður fjölbreytileika og sköpun þegar nemendur tóku þátt í fjölgreindarleikjum Gardners. Kenning Gardners um fjölgreind leggur áherslu á að einstaklingar læri á mismunandi vegu og búi yfir ólíkum styrkleikum, eins og rýmisgreind, tónlistargreind, samskiptagreind og hreyfigreind. Fram kemur á vef skólans að til að fagna þessum fjölbreytileika…Lesa meira

true

Dagur íslenskrar tungu í Heiðarskóla

Nemendur og starfsmenn Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit gerðu Degi íslenskrar tungu hátt undir höfði síðasta föstudag. Í upphafi dags var morgunsöngur þar sem minnst var á Jónas Hallgrímsson og sungin alls kyns lög og þar á meðal annars lagið „Það er gott að lesa“ í flutningi Bubba Mortens sem finna má á YouTube. Nemendur spreyttu sig…Lesa meira

true

Hyggjast reisa magnesíumverksmiðju á Grundartanga

Njörður Holding ehf. hefur til skoðunar að reisa sjálfbæra magnesíumverksmiðju á Grundartanga, sem er einn af þeim lóðarkostum sem verið er að skoða innan Evrópu. Verksmiðjan vinnur magnesíum úr sjó með nýrri aðferð sem Njörður hefur þróað og er sjálfbær og umhverfisvæn. Þetta kemur fram á mbl.is. Stefán Ás Ingvarsson forstjóri Njarðar segir í samtali…Lesa meira

true

Vinahúsið í Grundarfirði er nú fimmtán ára

Í nóvember árið 2009 setti Rauðakross deild Grundarfjarðar á laggirnar vinahús. Fetaði deildin þar í fótspor kollega hennar á Akranesi þar sem slíkt hafði verið starfrækt með góðum árangri. Vinahúsið fagnar því 15 ára afmæli um þessar mundir og af því tilefni voru veitingarnar töluvert veglegri mánudaginn 18. nóvember. Steinunn Hansdóttir hefur haft umsjón með…Lesa meira

true

Gleðigjafar héldu tónleika á 20 ára afmælinu

Kórinn Gleðigjafar, sem er kór eldri borgara í Borgarnesi og nágrenni, hefur nú starfað í tuttugu ár. Af því tilefni hélt kórinn tónleika í Borgarneskirkju laugardaginn 16. nóvember, við góða aðsókn. Kórfélagar eru 25 til 30, stjórnandi kórsins er Hólmfríður Friðjónsdóttir. Undirleikari kórsins á tónleikunum var László Petö organisti Stykkishólmskirkju.Lesa meira

true

Blakmaraþon hjá yngri flokkum í Grundarfirði

Miðvikudaginn 13. nóvember nýttu ungir blakiðkendur í Grundarfirði tækifærið á milli gulra viðvarana og gengu í hús og söfnuðu áheitum. Tilefnið var blakmaraþon sem var svo haldið sunnudaginn 17. nóvember þar sem krakkarnir létu ljós sitt skína. Byrjað var klukkan tíu um morguninn með æfingum fyrir U12 liðin. Svo tóku U14 liðin við og svo…Lesa meira