Fréttir

true

Strákarnir unnu hausttvímenning BB

Síðastliðið mánudagskvöld lauk þriggja kvölda hausttvímenningi Bridgefélags Borgarfjarðar í Logalandi. Spilað var á átta borðum. Árangur tveggja bestu kvölda gilti til verðlauna. Fyrir lokakvöldið leiddu Skagamennirnir Viktor Björnsson og Bjarni Guðmundsson mótið. Með öflugri spilamennsku síðasta kvöldið skutu hins vegar strákarnir, Ingimundur Jónsson og Logi Sigurðsson, þeim aftur fyrir sig og unnu með 125,5 stigum.…Lesa meira

true

Umhverfisviðurkenningar 2024 afhentar í Borgarbyggð

Í dag voru hin árlegu umhverfisverðlaun Borgarbyggðar afhent við athöfn í Ráðhúsi sveitarfélagsins. Að venju er það umhverfis- og landbúnaðarnefnd sveitarfélagsins sem stendur fyrir þessari verðlaunaveitingu og stýrði Sigrún Ólafsdóttir formaður nefndarinnar samkomunni. Auglýst var eftir tilnefningum frá almenningi um hvaða garðar, býli eða fyrirtæki/stofnanir verðskulduðu að hljóta verðlaun fyrir árið 2024. Nefndin safnaði saman…Lesa meira

true

Heimildamynd um áhrif laxeldis

Heimildamyndin Árnar þagna, eftir Óskar Pál Sveinsson, verður sýnd í Hjálmakletti í Borgarnesi fimmtudaginn 7. nóvember klukkan 20. Að lokinni sýningu verða umræður um efni myndarinnar með frambjóðendum og kjósendum í Norðvesturkjördæmi. Myndin fjallar um áhrif þess að 33 af þekktustu laxveiðiám Noregs var lokað „vegna skaðans sem sjókvíeldi á laxi og loftslagsbreytingar hafa valdið…Lesa meira

true

Búðin opnuð á ný

Búðin á Reykhólum var opnuð á ný 4. nóvember sl., en hún hafði ekki verið opin í rúmt ár. Árný Huld Haraldsdóttir rekur nú Búðina og verslunin verður opin alla virka daga milli klukkan 16:00 og 19:00 og veitingasalan alla virka daga í hádeginu, frá kl. 11:30 til 13:30. Í nóvember er ætlunin að hafa…Lesa meira

true

Lögregla lagði hald á skotvopn í bifreið

Í liðinni viku voru afskipti höfð af um 35 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Þar af mældust tveir ökumenn á tvöföldum leyfilegum hámarkshraða. Annar var mældur á Snæfellsnesi á 100 km hraða þar sem hámarkshraði er 50 km/klst og hinn var mældur í Borgarnesi á 60 km hraða þar sem…Lesa meira

true

Hundar ganga lausir og hafa drepið fjölda fjár

Í gær uppgötvaðist að hundar hafa gengið lausir í fjárhópum bænda í Borgarfirði og ýmist drepið kindur eða flæmt þær út í skurði. Á bænum Höll í Þverárhlíð fann Grétar Þór Reynisson bóndi níu dauðar kindur síðdegis í gær og eina til viðbótar helsærða. Aðfarirnar segir hann gjörólíkar því þegar tófa leggst á fé og…Lesa meira

true

Skoða tillögur vegna hagræðingar

Á fundi skóla- og fræðslunefndar Stykkishólms 22. október sl. fór skólastjóri leikskólans, Sigrún Þórsteinsdóttir, yfir starfsemi skólans og sagði frá því að leikskólanum hafi verið boðið að taka þátt á Barnahátíð í tengslum við Júlíönuhátíð sem fer fram dagana 25.-29. nóvember. Það stendur til að fá atriði úr leiksýningunni Fíusól og rithöfunda til þess að…Lesa meira

true

Tilboðsmarkaður með mjólkurkvóta

Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn 1. nóvember síðastliðinn. Matvælaráðuneytinu bárust 35 gild tilboð um kaup og sölutilboð voru 24. Hámarksverð skal, samkvæmt ákvörðun matvælaráðherra, vera þrefalt afurðastöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 398 kr. fyrir hvern lítra. Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverðið 250 kr./ltr. Sex tilboð bárust undir jafnvægisverði, en fjögur yfir…Lesa meira

true

Björgunarsveitarmaður lét lífið við æfingu

Formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar sendir meðfylgjandi tilkynningu: „Það er mér afar þungbært að þurfa að tilkynna um að góður félagi okkar, Sigurður Kristófer McQuillan Óskarsson, formaður björgunarsveitarinnar Kyndils í Mosfellsbæ, lést í slysi sem varð á æfingu í straumvatnsbjörgun í og við Tungufljót síðdegis á sunnudag,“ skrifar Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir formaður Landsbjargar. „Hugur minn og allra…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði í framlengdum leik á Akureyri

Skallagrímur heimsótti Þór frá Akureyri á föstudag í fimmtu umferð 1. deildar karla í körfubolta. Skallagrímur var með tvo sigra og tvö töp í fyrstu fjórum umferðum en heimamenn frá Akureyri voru án sigurs í deild. Skallagrímur var með nýjan leikmann í sínum röðum en Hilmir Hallgrímsson hefur samið um að vera á venslasamningi frá…Lesa meira