
Kennarar og stuðningsfulltrúi 7. bekkjar í Grunnskólanum í Borgarnesi klæddu sig upp á dögunum í tilefni þess að fyrsti leikur Íslands var á EM í handbolta. Þá mátti sjá fleiri bláklædda á sveimi um skólann af sama tilefni.Lesa meira

Kennarar og stuðningsfulltrúi 7. bekkjar í Grunnskólanum í Borgarnesi klæddu sig upp á dögunum í tilefni þess að fyrsti leikur Íslands var á EM í handbolta. Þá mátti sjá fleiri bláklædda á sveimi um skólann af sama tilefni.Lesa meira

Ýmis umferðarmál komu upp í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku. Alvarlegast var harður árekstur sem varð að morgni þriðjudags á hringveginum skammt frá Hvalfjarðarvegi þar sem ökumaður fólksbíls lést og annar slasaðist eftir árekstur við flutningabíl. Þá óskaði ökumaður eftir aðstoð í vikunni sem leið eftir að hafa hafnað utan vegar nærri Bröttubrekku.…Lesa meira

Söngleikurinn Úlfur, úlfur verður frumsýndur í Grundaskóla á Akranesi föstudaginn 26. janúar næstkomandi. Höfundar verksins eru þeir Einar Viðarsson, Gunnar Sturla Hervarsson og Flosi Einarsson. Söngleikurinn var síðast sýndur árið 2015 og var þá færður upp í Bíóhöllinni. Einar Viðarsson er leikstjóri sýningarinnar og Flosi Einarsson tónlistarstjóri. Einar segir að þetta sé fjórða árið í…Lesa meira

Byggðarráð Dalabyggðar fjallaði um sorphirðu á fundi í síðustu viku. Eins og flestum er kunnugt hefur Gámafélagið breytt fyrirkomulagi við söfnun matarleifa og kveður á um að í stað maíspoka verði notaðir bréfpokar. Ráðið samþykkti að styðja við það fyrirkomulag enda sé það að verða ráðandi á landinu og er umhverfisvænni leið. Lífrænn úrgangur í…Lesa meira

Rætt við Díönu Ósk sem í haust tók við starfi verslunarstjóra Olís í Borgarnesi Díana Ósk Heiðarsdóttir tók nýlega við sem verslunarstjóri á Olís stöðinni við brúarsporðinn í Borgarnesi. Hún býr á Akranesi en er úr Dölunum og kann vel við að starfa í Borgarnesi. Blaðamaður Skessuhorns hitti hana á vinnustað og spjallaði við hana…Lesa meira

Í nóvember á síðasta ári var ákveðið að Heiðarskóli í Hvalfjarðarsveit myndi prófa að vera símalaus skóli þann mánuðinn. Nemendur fengu val um að skilja farsímann eftir heima eða afhenda hann við komu í skólann og fá hann aftur fyrir heimferð. Gekk það vonum framar og í samráði við nemendur var ákveðið að halda áfram…Lesa meira

Undanfarna mánuði hefur verið starfandi vinnuhópur á vegum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi sem hefur það verkefni að kanna aukið samstarf slökkviliða á Vesturlandi. Hópurinn er skipaður fulltrúum frá sveitarfélögunum á Vesturlandi en Ragnar Sæmundsson bæjarfulltrúi á Akranesi er formaður hópsins. Á vef SSV er greint frá því að í síðustu viku heimsótti hópurinn, ásamt slökkviliðsstjórum…Lesa meira

Bæjarstjórn Snæfellsbæjar heimsótti nokkrar af stofnunum Snæfellsbæjar í síðustu viku og stefnt er að því að heimsækja þær stofnanir sem eftir eru í byrjun febrúar. Fram kemur á vefsíðu bæjarins að í þessari lotu voru heimsóttir leikskólarnir Krílakot og Kríuból og grunnskólahúsnæði á Hellissandi, Ólafsvík og Lýsuhóli. Einnig Dvalarheimilið Jaðar og íþróttamannvirkin, þ.e. sundlaugin í…Lesa meira

Í kvöld og nótt gengur lægð inn á vestan- og suðvestanvert landið með talsverðri snjókomu. Veðurstofan gefur út gula viðvörun vegna þessa sem gildir frá miðnætti í kvöld og fram á morgundaginn. Fyrir Breiðafjörð og Faxaflóa segir að; „talsverð snjókoma með takmörkuðu eða lélegu skyggni. Búast má við versnandi akstursskilirðum og afmörkuðum samgöngutruflunum.“Lesa meira

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar síðasta mánudag var tekin fyrir umsókn Hopplands ehf. um bætta aðstöðu við bryggjuna við endann á Bakkatúni á Akranesi. Þar voru reistir sjódýfingapallar fyrir tveimur árum síðan og hefur fyrirtækið Hoppland verið með starfsemi þar yfir sumartímann bæði árin. Fram kemur í fundargerð að skipulags- og umhverfisráð geti því…Lesa meira