Fréttir

true

Góðgerðardagur haldinn í Grundaskóla – Myndasyrpa

Undanfarna daga og vikur hafa nemendur og starfsfólk Grundaskóla á Akranesi verið að undirbúa góðgerðardag til styrktar hjálparstarfi eða svokallaðan Malavímarkað. Fór hann fram í íþróttasalnum að Jaðarsbökkum um hádegisbilið í dag. Yfirskriftin að viðburðinum var „Breytum krónum í gull.“ Til sölu var fjölbreytilegur varningur sem búinn var til af nemendum Grundaskóla en allur ágóði…Lesa meira

true

Snæfell tapaði fyrir Breiðablik í botnslagnum

Snæfell tók á móti Breiðabliki í Subway deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og var leikurinn í íþróttahúsinu við Borgarbraut í Stykkishólmi. Fyrir leik höfðu bæði lið tapað öllum sínum leikjum á tímabilinu og því alveg ljóst að tapliðið myndi sitja eitt á botni deildarinnar að leik loknum. Gestirnir úr Kópavoginum byrjuðu betur í leiknum…Lesa meira

true

Vextir og verðbætur falla niður af íbúðalánum Grindvíkinga í þrjá mánuði

Vegna náttúruhamfara og óvissuástands í Grindavík hafa Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn, í samvinnu við Samtök fjármálafyrirtækja (SFF), gert samkomulag um að fella niður vexti og verðbætur af íbúðalánum Grindvíkinga í þrjá mánuði. Samkomulag þessa efnis var undirritað í gær. „Með þessu vilja bankarnir koma til móts við viðskiptavini sína í Grindavík sem standa frammi…Lesa meira

true

Kátir krakkar kíktu í heimsókn í Brim

Í 4. bekk Brekkubæjarskóla á Akrnesi er alltaf eitthvað skemmtilegt um að vera, enda eru þar 44 eldhressir og klárir krakkar sem eru alltaf til í að fræðast og læra um eitthvað nýtt. Þetta haustið höfum við verið að vinna með hafið og sjávarútveginn, enda aldeilis viðeigandi búandi í fiskiþorpi við Atlantshafið. Við höfum lært…Lesa meira

true

Opnuð tilboð í brúarsmíði yfir Fjarðarhornsá og Skálmardalsá

Viku af nóvember voru hjá Vegagerðinni opnuð tilboð í brúarsmíði yfir Fjarðarhornsá og Skálmardalsá í Reykhólahreppi. Þetta er í annað sinn sem þessi verk eru boðin út, fyrra útboðið var í maí á þessu ári en þá bárust engin tilboð og var því auglýst að nýju. Umræddar brýr eru sitt hvoru megin við Klettsháls, Fjarðarhornsá…Lesa meira

true

Glaðst við fyrsta snjó vetrarins

Fyrsti snjór vetrarins féll víða á Vesturlandi í gær. Margir glöddust því samhliða eykst birtan í skammdeginu. Í Ólafsvík snjóaði í nótt og kunnu nemendur í Grunnskóla Snæfellsbæjar vel að meta það. Voru fljótir að búa til þennan myndarlega snjókall sem tók á móti nemendum og starfsfólki þegar mætt var í skólann í morgun.Lesa meira

true

Pílufélag Akraness stóð sig vel á Íslandsmótinu

Íslandsmót félagsliða 2023 í pílu fór fram með pompi og prakt um síðastliðna helgi á Bullseye Reykjavík en átta aðildarfélög ÍPS í karlaflokki tóku þátt og fimm af þeim sendu einnig inn kvennalið. Keppt var því um tvo Íslandsmeistaratitla; í karla- og kvennaflokki. Á laugardag var keppt í tvímenningi og einmenningi og á sunnudag var…Lesa meira

true

Þorrablót Skagamanna að þessu sinni á Jaðarsbökkum

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar síðasta fimmtudag var samþykkt erindi frá Sjötíu og níu menningarfélagi um að styðja hið árlega Þorrablót Skagamanna með sambærilegum hætti og undanfarin ár með endurgjaldlausum afnotum af íþróttamannvirki Akraneskaupstaðar. Viðburðurinn verður laugardaginn 20. janúar 2024 í íþróttahúsinu að Jaðarsbökkum. Í fundargerð kemur fram að bæjarráð telur mikilvægt í ljósi sérstakra aðstæðna…Lesa meira

true

Hraðhleðslu uppbygging í Borgarnesi

Á fundi byggingafulltrúa Borgarbyggðar á þriðjudag var samþykkt erindi Rarik ohf. en fyrirtækið sótti um leyfi fyrir að setja upp spennistöð við Digranesgötu 4 vegna hleðslugarðs sem Orka Náttúrunnar hyggst reisa á lóðinni. Skessuhorn greindi frá því fyrr á árinu að ON stefndi á að festa kaup á umræddri lóð við hlið þeirrar sem Grillhúsið…Lesa meira

true

Lionsmenn gefa tæki á sjúkrahúsið

Lionsklúbbur Akraness hélt 1014. fund sinn í gærkveldi. Fundurinn fór fram í fundarherbergi á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Þar var HVE á Akranesi afhent gjafabréf fyrir fjórum nýjum tækjum til notkunar á deildum spítalans. Um er að ræða Connect lífsmarkatæki, Varathon blöðruskanna, Intelli Vue hjartagjörgæslutæki og Acive A.C. sárasugu. Heildarandvirði gjafanna er 5,3 milljónir króna.…Lesa meira