
Krakkarnir fengu að skoða og pota og halda á fiskum ef þau vildu. Ljósm. Brekkó
Kátir krakkar kíktu í heimsókn í Brim
Í 4. bekk Brekkubæjarskóla á Akrnesi er alltaf eitthvað skemmtilegt um að vera, enda eru þar 44 eldhressir og klárir krakkar sem eru alltaf til í að fræðast og læra um eitthvað nýtt. Þetta haustið höfum við verið að vinna með hafið og sjávarútveginn, enda aldeilis viðeigandi búandi í fiskiþorpi við Atlantshafið. Við höfum lært um hafið sjálft, sjávarlífverurnar sem má finna hér í fjörum og sjó umhverfis landið og hvað við þurfum að gera til þess að vernda þessi mikilvægu svæði og lífríkið þar.