Fréttir

true

Sala Neyðarkallsins fer nú fram

Sala neyðarkalls björgunarsveitanna hófst í gær og stendur út helgina um allt land. Í gær hleyptu forsetahjónin sölunni af stað með formlegum hætti. Guðni forseti og Eliza Reid tóku við stórum Neyðarkalli við færanlega stjórnstöð björgunarsveita á SV-horninu, við Perluna. Neyðarkall 2023 er aðgerðastjórnandi og aðgerðastjórnandinn Karen Lárusdóttir, sem einnig er glettilega lík Neyðarkalli 2023,…Lesa meira

true

Fimmtungi fleiri ferðamenn í sumar

Um 790 þúsund erlendir ferðamenn komu til landsins um Keflavíkurflugvöll síðastliðið sumar samkvæmt tölum Ferðamálastofu. Er það um fimmtungi fleira en komu í fyrrasumar. Um er að ræða næstfjölmennasta ferðamannasumarið frá því mælingar hófust. Fjöldinn nú var um 98% af því sem hann var sumarið 2018 sem var metsumar. Bandaríkjamenn voru langfjölmennastir í sumar, 300…Lesa meira

true

Hrekkjavaka í Hvalfjarðarsveit – Myndasyrpa

Leikskólinn Skýjaborg og Heiðarskóli í Hvalfjarðarsveit héldu upp á Hrekkjavöku í dag og fór blaðamaður Skessuhorns í heimsókn til að kíkja á krakkana. Fyrst var förinni heitið á Skýjaborg í Melahverfi og síðan áleiðis í Heiðarskóla. Margir voru í búningum og einnig í góðu skapi enda tilefni til. Blaðamaður fékk að smella af nokkrum myndum…Lesa meira

true

Breyting á riðureglugerð

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðaherra hefur undirritað breytingu á reglugerð um útrýmingu á riðuveiki í sauðfé og bætur vegna niðurskurðar. Breytingin kveður á um að yfirdýralæknir geti framvegis lagt til við ráðherra niðurskurð á hluta þar sem riða greinist en ekki allrar hjarðarinnar líkt og reglugerðin hefur kveðið á um fram til þessa. Þannig verður gert mögulegt…Lesa meira

true

Miðstöð öldrunarþjónustu í Stykkishólmi fékk heitið Höfðaborg

Síðastliðinn miðvikudag tilkynnti Jakob Björgvin S. Jakobsson um nafn á Miðstöð öldrunarþjónustu í Stykkishólmi að Skólastíg 14. Varð nafnið Höfðaborg hlutskarpast. Nafnasamkeppni fyrir miðstöðina var sett í loftið fyrir skemmstu sem stóð opin í viku og gafst þá fólki kostur á því að leggja fram tillögur að nöfnum. Í kjölfarið tók þar til gerð nefnd…Lesa meira

true

Systraskjól er nýtt nafn á dvalarheimilinu

Í gær var athöfn í Stykkishólmi þar sem nýtt hjúkrunar- og dvalarheimili var formlega tekið í notkun. Við þetta tilefni var heimilinu gefið nafnið Systraskjól. Það var Hrefna Frímannsdóttir sem tilkynnti um nafnið sem ákveðið var með kosningu starfsfólks heimilisins. Viðburðinum verður gerð nánari skil hér í næstu viku.Lesa meira

true

Hátt uppi við störf sín

Starf hafnarvarða geta verið fjölbreytt og ekki alltaf setið við tölvu við að skrá inn aflatölur. Það fékk Þórður Björnsson hafnarvörður í Snæfellsbæ að kynnast þegar hann var að setja upp kastara á ljósamastrið í Rifshöfn nú í vikunni. Mastrið lýsir á nýja bílaplanið og var Þórður hátt uppi þegar myndin er tekin. Augljóslega var…Lesa meira

true

E. Sigurðsson með lægsta tilboð í næsta áfanga íþróttahússins á Jaðarsbökkum

Síðastliðinn mánudag voru á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Akraneskaupstaðar kynnt tilboð í innanhússfrágang nýja íþróttahússins á Jaðarsbökkum. Alls bárust fjögur tilboð í verkið. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á rúman 1,1 milljarð króna og kynnti verkfræðistofan Mannvit umsögn sína um hagstæðasta tilboðið. Byggingarfélagið Bestla ehf. var með tilboð upp á tæplega 1,7 milljarða króna sem er um…Lesa meira

true

Kaffiboð til heiðurs Hilmari skólastjóra

Nú í vikunni lét Hilmar Snorrason af störfum sem skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna eftir langt og farsælt starf. Hélt Landsbjörg kaffiboð honum til heiðurs í Sæbjörginni. „Vill stjórn félagsins og starfsfólk skrifstofu þakka Hilmari fyrir ómetanlegt starf í þágu félagsins undanfarin 32 ár. Hilmar og hans starfsfólk hefur lyft grettistaki í slysavörnum sjómanna á undanförnum áratugum,“…Lesa meira

true

Metfjöldi kylfinga og golfið er nú næstfjölmennasta íþróttagreinin

Golfíþróttin er í stöðugum vexti hér á landi og hafa kylfingar aldrei verið fleiri en nú. Í tilkynningu frá Golfsambandi Íslands kemur fram að um mitt þetta ár voru 24.201 félagsmenn skráðir í golfklúbba víðs vegar um landið og er golf því næst fjölmennasta íþróttagreinin sem stunduð er innan ÍSÍ, á eftir knattspyrnu þar sem…Lesa meira