
Sala Neyðarkallsins fer nú fram
Sala neyðarkalls björgunarsveitanna hófst í gær og stendur út helgina um allt land. Í gær hleyptu forsetahjónin sölunni af stað með formlegum hætti. Guðni forseti og Eliza Reid tóku við stórum Neyðarkalli við færanlega stjórnstöð björgunarsveita á SV-horninu, við Perluna. Neyðarkall 2023 er aðgerðastjórnandi og aðgerðastjórnandinn Karen Lárusdóttir, sem einnig er glettilega lík Neyðarkalli 2023, útskýrði hlutverk aðgerðastjórnanda fyrir forsetanum og sýndi honum inn í stjórnstöðina og hvernig aðgerðir eru skipulagðar og þeim stýrt.
Neyðarkall björgunarsveitanna er ein af stóru fjáröflunum björgunarsveitanna og fram á sunnudag má búast við björgunarsveitafólki annað hvort knýja dyra eða bjóða Neyðarkall til sölu við verslunarmiðstöðvar. „Það er von okkar að landsmenn taki nú sem endranær vel á móti sjálfboðaliðum okkar og sjái sér fært að styrkja björgunarsveitir landsins,“ segir í tilkynningu frá Landsbjörgu.