Pálína Guðný Þorvarðardóttir var heiðruð fyrir nafnatillöguna sem þótti best. Ljósm. stykkisholmur.is

Miðstöð öldrunarþjónustu í Stykkishólmi fékk heitið Höfðaborg

Síðastliðinn miðvikudag tilkynnti Jakob Björgvin S. Jakobsson um nafn á Miðstöð öldrunarþjónustu í Stykkishólmi að Skólastíg 14. Varð nafnið Höfðaborg hlutskarpast. Nafnasamkeppni fyrir miðstöðina var sett í loftið fyrir skemmstu sem stóð opin í viku og gafst þá fólki kostur á því að leggja fram tillögur að nöfnum. Í kjölfarið tók þar til gerð nefnd við boltanum og valdi úr fimm álitlegustu tillögurnar og efndi til kosningar þeirra á milli. Þátttaka í kosningunni var mjög góð en rúmlega 500 manns tóku þátt í henni. Það nafn sem var hlutskarpast hlaut 62% atkvæða, en atkvæði skiptust nokkuð jafnt milli hinna fjögurra, eða á milli 5-15% atkvæða hvert um sig þannig að niðurstaðan var afgerandi. Það var Pálína Guðný Þorvarðardóttir sem átti tillöguna að nafninu og var hún sérstaklega heiðruð fyrir.

Miðstöð öldrunarþjónustu í Stykkishólmi fékk heitið Höfðaborg - Skessuhorn