Krakkarnir á Skýjaborg voru í flottum búningum. Ljósm. vaks

Hrekkjavaka í Hvalfjarðarsveit – Myndasyrpa

Leikskólinn Skýjaborg og Heiðarskóli í Hvalfjarðarsveit héldu upp á Hrekkjavöku í dag og fór blaðamaður Skessuhorns í heimsókn til að kíkja á krakkana. Fyrst var förinni heitið á Skýjaborg í Melahverfi og síðan áleiðis í Heiðarskóla. Margir voru í búningum og einnig í góðu skapi enda tilefni til. Blaðamaður fékk að smella af nokkrum myndum og fangaði stemninguna sem var ansi góð.

Hrekkjavaka í Hvalfjarðarsveit - Myndasyrpa - Skessuhorn