Fréttir

true

Franskir blaðamenn á ferð um Vesturland

Markaðsstofa Vesturlands í samstarfi við Íslandsstofu tók nýverið á móti frönskum blaðamönnum. Hópurinn ferðaðist í þrjá daga um Vesturland og naut afþreyingar, veitinga og gistingar á svæðinu. Veðrið sýndi á sér ólíkar hliðar þessa daga og þurfti að breyta plani fyrir hópinn nokkrum sinnum. Allir voru þó alsælir með ferðina og kom gestunum á óvart…Lesa meira

true

Fylgst með útifundi í beinni

Tugþúsundir kvenna og kvára eru nú á Arnarhvoli í Reykjavík á samstöðufundi á baráttudegi kvenna. En það eru ekki allar konur sem fóru þangað. Á Akranesi er m.a. komið saman í matsal Nítjándu bistro á Garðavöllum fyrir klukkan 14 og fylgst með beinu streymi frá Arnarhóli. Þar er nú þétt setinn bekkurinn eins og sjá…Lesa meira

true

Loka fjórum kennslustofum alfarið

Í september var tekin ákvörðun um að loka fjórum kennslustofum sem staðsettar eru í miðálmu Grunnskólans í Borgarnesi vegna gruns um myglu. Til að gæta að öryggi nemenda og starfsfólks var ákveðið að hætta tafarlaust kennslu í umræddum stofum. Í kjölfarið voru tekin sýni og nú liggja fyrir bráðabirgðaniðurstöður. Frumskoðun sýnir að mygla er til…Lesa meira

true

Synt til hinstu hvílu

Það vakti athygli vegfaranda að stór útselur lá í fjörunni við smábátahöfnina í Grundarfirði í morgun. Hann bærði lítið á sér og andaði með herkjum þegar ljósmyndari Skessuhorns kom á staðinn. Farið var að huga að aflífun dýrsins en augljóst var að selurinn var ekki í sínu besta formi. Það kom þó ekki til þess…Lesa meira

true

Kynntu tillögur um nýtt skipulag Jaðarsbakkasvæðis

Í gærkvöldi bauð Akraneskaupstaður til kynningarfundar í Bíóhöllinni. Þar var kynnt staða verkefnis sem unnið hefur verið að á þessu ári og snýst um mögulega breytt skipulag Jaðarsbakkasvæðis. Kynnt var frumvinna starfshóps um verkefnið og tillögur þriggja arkitektastofa sem fengnar voru til að gera vinnslutillögur um svæðið út frá ákveðinni forskrift sem lögð hafði verið…Lesa meira

true

ÍA og Skallagrímur úr leik í VÍS bikarnum

Fyrstu deildar liðin Fjölnir og ÍA mættust í 32-liða úrslitum VÍS bikars karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Dalhúsum í Grafarvogi. Heimamenn í Fjölni byrjuðu leikinn af miklum krafti og þegar fyrsta leikhluta lauk var staðan 36:20 fyrir Fjölni. Þeir juku muninn enn meir í öðrum leikhluta og þegar flautað var…Lesa meira

true

Mýsnar spá suðaustan átt í vetur

Þessa mynd tók Laufey Bjarnadóttir bóndi á Stakkhamri í Eyja- og Miklaholtshreppi nú í vikunni. Þarna má sjá nýlega holugerð í væntanlegu fjölbýlishúsi músa á jörð hennar. Kraftur er í holugerðinni og að minnsta kosti tvíbýlt á torfunni. Aðspurð segir Laufey að holurnar snúi í norðvestur. Samkvæmt gamalli þjóðtrú snúa músaholur undan ríkjandi vindátt næsta…Lesa meira

true

Öglukonur gáfu Uglukletti þyngingarvesti

Lionsklúbburinn Agla í Borgarnesi var stofnaður 1994 og á því 30 ára afmæli á næsta ári. Klúbburinn lætur sig varða ýmis mál í nærsamfélaginu og leggur metnað í að styrkja góð málefni. Nýlega gaf klúbburinn „þyngingarvesti“ til leikskólans Uglukletts í Borgarnesi, en skólinn hafði verið með slíkt vesti að láni. „Dagbjört Birgisdóttir iðjuþjálfi veitti okkur…Lesa meira

true

Sóley Sigurjóns landaði í Grundarfirði

Togarinn Sóley Sigurjóns GK 200 lagði að bryggju í Grundarfirði í gær þar sem tæp 75 tonn af afla voru hífð upp á bryggju. Uppistaðan var þorskur í bland við annað. Vel gekk að landa og voru starfsmenn Djúpakletts snöggir að afgreiða skipið.Lesa meira

true

Byggðasafn Dalamanna vegalaust

Húseignir á jörðinni Staðarfelli á Fellsströnd í Dölum hafa nú verið seldar til fjárfesta sem hyggjast koma þar upp hóteli. Staðurinn hafði áður verið nefndur sem framtíðaraðsetur Byggðasafns Dalamanna sem hefur verið húsnæðislaust síðan sýning þess var tekin niður á Laugum í Sælingsdal fyrir nokkrum árum. Menningarmálanefnd Dalabyggðar ræddi stöðu safnamála á fundi sínum 9.…Lesa meira