Grunnskólinn í Borgarnesi. Ljósm. vaks

Loka fjórum kennslustofum alfarið

Í september var tekin ákvörðun um að loka fjórum kennslustofum sem staðsettar eru í miðálmu Grunnskólans í Borgarnesi vegna gruns um myglu. Til að gæta að öryggi nemenda og starfsfólks var ákveðið að hætta tafarlaust kennslu í umræddum stofum. Í kjölfarið voru tekin sýni og nú liggja fyrir bráðabirgðaniðurstöður. Frumskoðun sýnir að mygla er til staðar í tveimur af þeim fjórum stofum sem voru lokaðar, ásamt sameiginlegum rýmum meðfram umræddum stofum.

Loka fjórum kennslustofum alfarið - Skessuhorn