Hér er hluti hópsins á Snæfellsnesi. Ljósm. Kristján Guðmundsson

Franskir blaðamenn á ferð um Vesturland

Markaðsstofa Vesturlands í samstarfi við Íslandsstofu tók nýverið á móti frönskum blaðamönnum. Hópurinn ferðaðist í þrjá daga um Vesturland og naut afþreyingar, veitinga og gistingar á svæðinu. Veðrið sýndi á sér ólíkar hliðar þessa daga og þurfti að breyta plani fyrir hópinn nokkrum sinnum. Allir voru þó alsælir með ferðina og kom gestunum á óvart fjölbreytileikinn á svæðinu, segir í frétt á vef Markaðsstofu Vesturlands.

Franskir blaðamenn á ferð um Vesturland - Skessuhorn