
Á annað hundrað manns mættu á kynningarfundinn í Bíóhöllinni. Ljósm. mm
Kynntu tillögur um nýtt skipulag Jaðarsbakkasvæðis
Í gærkvöldi bauð Akraneskaupstaður til kynningarfundar í Bíóhöllinni. Þar var kynnt staða verkefnis sem unnið hefur verið að á þessu ári og snýst um mögulega breytt skipulag Jaðarsbakkasvæðis. Kynnt var frumvinna starfshóps um verkefnið og tillögur þriggja arkitektastofa sem fengnar voru til að gera vinnslutillögur um svæðið út frá ákveðinni forskrift sem lögð hafði verið fyrir þær.