Fréttir

true

Byggðasafn Dalamanna vegalaust

Húseignir á jörðinni Staðarfelli á Fellsströnd í Dölum hafa nú verið seldar til fjárfesta sem hyggjast koma þar upp hóteli. Staðurinn hafði áður verið nefndur sem framtíðaraðsetur Byggðasafns Dalamanna sem hefur verið húsnæðislaust síðan sýning þess var tekin niður á Laugum í Sælingsdal fyrir nokkrum árum. Menningarmálanefnd Dalabyggðar ræddi stöðu safnamála á fundi sínum 9.…Lesa meira

true

Vökudagar hefjast á Akranesi næsta fimmtudag

Vökudagar, menningar- og listahátíð Akraneskaupstaðar, fer fram í 21. sinn dagana 26. október – 5. nóvember. Að venju eru viðburðir hátíðarinnar fjölbreyttir og fyrir alla aldurshópa en á dagskránni í ár má finna um fimmtíu viðburði. Blaðamaður Skessuhorns sló á þráðinn til Veru Líndal, sem er forstöðumaður menningar- og safnamála hjá Akraneskaupstað, og skipuleggjandi hátíðarinnar.…Lesa meira

true

Heima-Skaga hátíð með 23 tónleikum í ellefu heimahúsum og Bíó-balli

Tónlistarhátíðin Heima-Skagi verður haldin í þriðja sinn laugardaginn 28. október næstkomandi og er liður í menningarhátíðinni Vökudögum á Akranesi, sem standa yfir frá 26. október til 5. nóvember. Á Heima-Skaga koma fram ellefu listamenn og hljómsveitir sem spila tvisvar sinnum hver í jafn mörgum húsum. „Það stefnir í magnað kvöld, með 23 tónleikum í heima-húsum…Lesa meira

true

Kynningarfundur um breytt skipulag Jaðarsbakkasvæðis er í kvöld

Akraneskaupstaður kynnir á upplýsingasíðu sinni opinn kynningarfund í kvöld, mánudag, þar sem þrjár hönnunarstofur; Nordic arkitektar, Basalt arkitektar og Sei arkitektar, sem unnið hafa frumhönnun að breyttu skipulagi Jaðarsbakkasvæðisins, munu kynna tillögur sínar. „Fundurinn verður haldinn í Bíóhöllinni á Akranesi og hefst kl. 19:30, en einnig er stefnt að því að bjóða upp á beint…Lesa meira

true

Badmintonfélag Akraness heiðraði Árna Þór

Skagamanninum Árna Þór Hallgrímssyni var um helgina veittur Minningarskjöldur Súsönnu af Badmintonfélagi Akraness en skjöldurinn er gefinn í minningu Súsönnu Steinþórsdóttur sem starfaði mikið fyrir félagið sem foreldri. Skjöldurinn er veittur til einstaklings sem hjálpar, hvetur og styður með gleði og vináttu. Árni Þór er fæddur og uppalinn á Akranesi og er margfaldur Íslandsmeistari í…Lesa meira

true

Viðraði vel til rjúpnaveiða um helgina

Fyrsta helgin í rjúpnaveiðitímabili haustsins er nú liðin og voru veiðimenn einkar heppnir með veður. Í ljósi þess að snjólaust er til fjalla er fuglinn þó ljónstyggur. „Við frændurnir frá Færeyjum gengum til rjúpna upp í Borgarfirði og það var meiriháttar. Við fengum nokkrar rjúpur,“ sagði Jógvan Hansen söngvari í samtali við Skessuhorn. Töluvert margir…Lesa meira

true

Hefur stofnað fyrirtækið Skagaraf á Akranesi

Eitt nýjasta fyrirtækið í flórunni á Akranesi er rafþjónustufyrirtækið Skagaraf. Það er stofnað og rekið af Marin Stankov, rafvirkjameistara og mun hann bjóða upp á alhliða rafvirkjun fyrir heimili og fyrirtæki en sérhæfa sig m.a. í uppsetningu og löggildingu hleðslustöðva fyrir rafbíla. Blaðamaður Skessuhorns spjallaði stuttlega við Marin, en hann er tæplega sextugur að aldri…Lesa meira

true

Kvennaverkfall mun hafa víðtæk áhrif

Boðað kvennaverkfall á morgun, þriðjudag, mun hafa áhrif víðsvegar í samfélaginu. Ýmist munu fyrirtæki og stofnanir verða með lokað eða að starfsemi verður í lágmarki. Einkum eru það skólastofnanir og heilbrigðisþjónusta sem þjónusta skerðist enda eru konur í afgerandi meirihluta á þeim vinnustöðum. Þá verður skerðing á starfsemi banka og hefur t.d. Arionbanki tilkynnt að…Lesa meira

true

Akranesmet í sundi og fjöldi verðlauna eftir mót helgarinnar

Einar Margeir Ágústsson, sundmaður á Akranesi, setti um helgina unglingamet og náði lágmarki á Evrópumeistaramótið í 25 metra laug. 14 sundmenn frá ÍA tóku þátt á Cube-móti SH í Ásvallalaug í Hafnarfirði en á mótinu tóku þátt 276 sundmenn. Einar Margeir setti nýtt íslenskt unglingamet í 50 metra bringusundi á tímanum 27,24, sem var undir…Lesa meira

true

Snæfell úr leik í VÍS bikar karla eftir tap á móti Hetti

Snæfell og Höttur mættust í 32-liða úrslitum VÍS bikars karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Stykkishólmi. Fyrstu deildar liði Snæfells gekk ágætlega að halda í við gestina til að byrja með í fyrsta leikhluta en Höttur leikur í efstu deild karla, Subway deildinni. Þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir af leikhlutanum…Lesa meira