Frá listsýningu á Vökudögum í fyrra. Ljósm. Blik studio.

Vökudagar hefjast á Akranesi næsta fimmtudag

Vökudagar, menningar- og listahátíð Akraneskaupstaðar, fer fram í 21. sinn dagana 26. október – 5. nóvember. Að venju eru viðburðir hátíðarinnar fjölbreyttir og fyrir alla aldurshópa en á dagskránni í ár má finna um fimmtíu viðburði. Blaðamaður Skessuhorns sló á þráðinn til Veru Líndal, sem er forstöðumaður menningar- og safnamála hjá Akraneskaupstað, og skipuleggjandi hátíðarinnar. Hverjir standa fyrir viðburðunum? ,,Í rauninni stendur listafólkið í bænum að viðburðunum og einhverjir utanað komandi líka. Það er mikil breidd á listformi og á þeim aldurshópum sem taka þátt,“ segir Vera. Hún hvetur sem flesta til að mæta á opnunarhátíð Vökudaga sem verður fimmtudaginn 26. október. ,,Á setningarhátíðinni munum við úthluta menningarverðlaunum og umhverfisverðlaunum Akraneskaupstaðar. Í kjölfar þess verður svo listganga þar sem bæjarbúar fara á stjá og kíkja á sýningaropnanir og vinnustofur. Gangan er skemmtilegt sameiningartákn fyrir hátíðina.“