Marin Stankov við vinnubílinn sinn. Ljósm. mm

Hefur stofnað fyrirtækið Skagaraf á Akranesi

Eitt nýjasta fyrirtækið í flórunni á Akranesi er rafþjónustufyrirtækið Skagaraf. Það er stofnað og rekið af Marin Stankov, rafvirkjameistara og mun hann bjóða upp á alhliða rafvirkjun fyrir heimili og fyrirtæki en sérhæfa sig m.a. í uppsetningu og löggildingu hleðslustöðva fyrir rafbíla. Blaðamaður Skessuhorns spjallaði stuttlega við Marin, en hann er tæplega sextugur að aldri og flyst hingað til lands fyrir átta árum. Hefur hann unnið hjá nokkrum íslenskum fyrirtækjum en auk þess aflað sér réttinda og löggildingar sem rafvirkjameistari.

Hefur stofnað fyrirtækið Skagaraf á Akranesi - Skessuhorn