Fréttir

true

Beðið eftir verktökum til að rífa Borgarbraut 55

Eins og fram kom í Skessuhorni fyrir stuttu fengu HK verktakar ehf lóð við Borgarbraut 55 í Borgarnesi úthlutaðri í byrjun árs og hyggjast reisa þar fjölbýlishús. Borgarbrautin er aðalgata bæjarins og lóðin vel staðsett hvað varðar aðgengi að ýmiss konar verslun og þjónustu á nærsvæði. Eins og sést á myndinni hefur niðurrif hússins sem…Lesa meira

true

Hvalreki við Búðir

Tvo hvali hefur rekið við Búðir á Snæfellesnesi í vikunni og er um hrefnur að ræða. Samkvæmt upplýsingum frá Evu Dögg Einarsdóttur yfirlandverði í Snæfellsjökulsþjóðgarði hafa dýrin greinilega drepist fyrir nokkru. Annað þeirra hefur nú tekið út á flóði, en hitt er enn í flæðarmálinu. Samkvæmt vef Náttúrufræðistofnunar er hrefnan útbreidd í öllum heimshöfum og…Lesa meira

true

Bilun á símasambandi í Ólafsvík

Bilun hefur orðið á tæknibúnaði á símamastri NOVA við pósthúsið í Ólafsvík og hefur tengibox á mastrinu losnað úr festingu, væntanlega vegna hvassviðris. Að sögn talsmanns hjá NOVA er verið að greina bilunina og senda tæknimenn vestur til viðgerðar og reiknað er með að takist að koma símasambandinu í lag fyrir kvöldið. Allmargir íbúar Ólafsvíkur…Lesa meira

true

Nýir raunveruleikaþættir gefnir út um þjálfun hrossa

Fyrsti þátturinn í sjö þátta seríunni Ride masters var gefinn út sunnudaginn 15. október síðastliðinn. Ride masters eru í formi raunveruleikaþátta þar sem fimm knapar etja kappi í þjálfun hrossa. Fimm þekkt ræktunarbú taka þátt í keppninni með því að leggja til einn hest hvert en eitt búið er staðsett á Vesturlandi og er það…Lesa meira

true

Skrifstofan lokuð eftir hádegi

Skrifstofa Skessuhorns er lokuð eftir hádegi í dag, föstudaginn 20. október, vegna verkefna starfsfólks utan hennar. Bendum á tölvupóst skessuhorn@skessuhorn.is vegna efni til ritstjórnar, en auglýsingar@skessuhorn.is til markaðsdeildar. Beinn sími ritstjóra er 894-8998.Lesa meira

true

Ýmis brot ökumanna

Afskipti voru höfð af 28 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku. Sá sem hraðast ók mældist á 145 km hraða. Þrír ökumenn voru grunaðir um ölvun við akstur og einn um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Afskipti voru höfð af nokkrum ökumönnum vegna farsímanotkunar við akstur og…Lesa meira

true

Flýtum vinnslu blaðs vegna mögulegra áhrifa kvennaverkfalls

Fjölmörg samtök kvenna og launafólks á vinnumarkaði blása þriðjudaginn 24. október til kvennaverkfalls. Framkvæmd og útfærsla verkfallsins er lögð í hendur hvers og eins starfsmanns. Búist er við að áhrifa verkfallsins gæti víðsvegar í samfélaginu enda konur og kvár um helmingur fólks á vinnumarkaði. Vegna mögulegra áhrifa verkfallsins verður vinnslu Skessuhorns í þessari viku flýtt…Lesa meira

true

Krókaleiðir lífsins

Rætt við Margréti Birnu Kolbrúnardóttur á Snæfellsnesi sem framleiðir vöggusett til útsaums Hvað þarf til að kona taki sig upp af heimaslóðum og komi sér fyrir í fjarlægri sveit – og er hún í raun svo fjarlæg? Stundum kemur lífið fólki á óvart og leiðir það á nýjar slóðir sem þó reynast gamlar. Blaðamaður Skessuhorns…Lesa meira

true

Bleiki dagurinn er í dag

Árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins sem stendur í október nær hápunkti í dag, 20. október, á bleikum degi. Skessuhorn tekur undir hvatningu Krabbameinsfélagsins til landsmanna um að vera bleik þannig að Bleiki dagurinn í ár verði sá allra bleikasti hingað til.Lesa meira

true

Eyjólfur Ingvi í stutt leyfi

Eyjólfur Ingvi Bjarnason oddviti sveitarfélagsins Dalabyggðar hefur óskað eftir leyfi frá störfum í sveitarstjórn í þrjá mánuði frá 1. nóvember nk. að telja. Erindi hans var tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar 12. október sl. og leyfið veitt. Að sögn Eyjólfs Ingva er hann að fara í fæðingarorlof frá sveitarstjórn þar sem hann og kona hans…Lesa meira