
Tvo hvali hefur rekið við Búðir á Snæfellesnesi í vikunni og er um hrefnur að ræða. Samkvæmt upplýsingum frá Evu Dögg Einarsdóttur yfirlandverði í Snæfellsjökulsþjóðgarði hafa dýrin greinilega drepist fyrir nokkru. Annað þeirra hefur nú tekið út á flóði, en hitt er enn í flæðarmálinu. Samkvæmt vef Náttúrufræðistofnunar er hrefnan útbreidd í öllum heimshöfum og…Lesa meira







