Fréttir

true

,,Allir bera ábyrgð á sínu sorpi“

Rætt við Sóleyju Birnu Baldursdóttur um umhverfismál í Borgarbyggð Sóley Birna Baldursdóttir tók við starfi deildarstjóra umhverfis- og landbúnaðarmála hjá Borgarbyggð í lok maí síðastliðins, en fyrir það sinnti hún starfi verkefnastjóra innan skipulags- og byggingardeildar sveitarfélagsins. Í starfi sínu hefur hún umsjón með áhaldahúsi, sorphirðu, umferðarmálum, umhverfismálum, er starfsmaður fjallskilanefnda ásamt fleiru. Blaðamaður Skesshorns…Lesa meira

true

Sex umferðaróhöpp í liðinni viku

Sex umferðaróhöpp komu inn á borð Lögreglunnar á Vesturlandi á liðinni viku en í öllum tilvikum voru minniháttar slys á fólki. Einhver umferðaróhappanna má rekja til veðurs eða færðar en ökumenn voru flestir óundirbúnir fyrir slabb og snjó sem birtist víða á vegum í síðustu viku og jafnvel einnig hvassviðri. Ökumaður í einu umferðaróhappi er…Lesa meira

true

Eðalfang eignast meirihluta í 101 Seafood

Eðalfang ehf. hefur keypt 50,1% hlutafjár í félaginu 101 Seafood ehf., og verður þar með stærsti hluthafi félagsins. Bætist 101 Seafood þar með inn í samstæðu Eðalfangs sem er í grunninn tvö matvælafyrirtæki með áherslu á sjávarútveg. Annars vegar Eðalfiskur ehf. í Borgarnesi og hins vegar Norðanfiskur ehf. á Akranesi. Eðalfiskur sérhæfir sig í framleiðslu,…Lesa meira

true

Halda áfram samningi um loftslagsvænan landbúnað

Skrifað var í dag undir nýjan samning um loftslagsvænan landbúnað. Samningurinn er stækkaður og á að efla verkefnið sem hefur verið í gangi síðan 2020, en nýi samningurinn gildir út 2024. Í lok árs 2022 voru 46 bú í verkefninu, 22 í sauðfjárrækt og 24 í nautgriparækt. Það var Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra sem skrifaði undir…Lesa meira

true

Verkefnið Brothættar byggðir er sagt skila miklum árangri

Byggðaþróunarverkefnið Brothættar byggðir er tíu ára um þessar mundir. Af því tilefni var haldið málþing á Raufarhöfn í byrjun mánaðarins, en Raufarhöfn var fyrsta byggðarlagið til að taka þátt í verkefninu. Meginmarkmið Brothættra byggða er að sporna við viðvarandi fólksfækkun í smærri byggðakjörnum og í sveitum landsins. „Þó að það hafi ekki tekist í öllum…Lesa meira

true

Urðun á Vesturlandi hefur dregist saman um tólf prósent

Farið yfir stöðu sveitarfélaganna í innleiðingu nýs flokkunarkerfis Um síðustu áramót varð sveitarfélögum á landinu skylt að flokka sorp í fjóra aðskilda flokka, þ.e. pappa og pappír, plast, lífrænan úrgang og almennt sorp. Sveitarfélögin eru komin mislangt í innleiðingu kerfisins. Blaðamaður Skessuhorns hafði samband við Hrefnu Bryndísi Jónsdóttur, framkvæmdarstjóra Sorpurðunar Vesturlands hf., til að fá…Lesa meira

true

Ferðakaupstefnan Vestnorden hófst í morgun

Ferðakaupstefnan Vestnorden fer í dag og á morgun fram í Reykjavík. Kaupstefnan er samstarfsverkefni Íslands, Færeyja og Grænlands undir hatti NATA, North-Atlantic Tourism Association. Alls munu rúmlega 600 gestir sækja kaupstefnuna að þessu sinni, þar af kaupendur frá um 30 löndum víðsvagar að úr heiminum.    Vestnorden er mikilvægasti vettvangur viðskipta í ferðaþjónustu á Norður…Lesa meira

true

Skógarbændur héldu málþing á Degi landbúnaðarins

Skógarbændur héldu málþing laugardaginn 14. október að Þinghamri í Stafholtstungum og var það hluti af Degi landbúnaðarins. Málþingið sóttu um 80 manns og voru fyrirlesarar 15. Þingið var haldið af félögum skógarbænda sem eru fimm á landinu og búgreinadeild skógarbænda hjá Bændasamtökum Íslands. Samstarfsaðilar voru Skógrækin, Skógræktarfélag Íslands, Ráðgjafamiðstöð Landbúnaðarins, Landbúnaðarháskólinn og Garðyrkjuskólinn/FSU. Þema málþingsins…Lesa meira

true

Hittust á Hvammstanga og spiluðu ringó

Við breiða sem víðast út íþróttina Undanfarin ár hafa nokkur félög víða um land stundað íþróttagreinina ringó. En, hvað er ringó? Skessuhorn fékk Flemming Jessen, sem sýnt hefur mikinn drifkraft í útbreiðslu íþróttarinnar, til að útskýra það. „Ringó er leikur sem spilaður er á velli/flöt sem er á stærð við blakvöll 18×9 og hentar vel…Lesa meira

true

Hvasst verður við fjöll um tíma á morgun

Á morgun, þriðjudaginn 17. október á milli kl. 12 og 18, er spáð snörpum suðaustan hviðum við Hafnarfjall, allt að 35 m/s. Einnig á utanverðu Kjalarnesi og í Hvalfirði, sem og á norðanverðu Snæfellsnesi á milli Grundarfjarðar og Ólafsvíkur. Vegagerðin biðlar til ökumanna að taka tillit til þessa.Lesa meira