
Fundarmenn í salnum á Þinghamri. Texti og ljósmyndir: Guðmundur Sigurðsson
Skógarbændur héldu málþing á Degi landbúnaðarins
Skógarbændur héldu málþing laugardaginn 14. október að Þinghamri í Stafholtstungum og var það hluti af Degi landbúnaðarins. Málþingið sóttu um 80 manns og voru fyrirlesarar 15. Þingið var haldið af félögum skógarbænda sem eru fimm á landinu og búgreinadeild skógarbænda hjá Bændasamtökum Íslands. Samstarfsaðilar voru Skógrækin, Skógræktarfélag Íslands, Ráðgjafamiðstöð Landbúnaðarins, Landbúnaðarháskólinn og Garðyrkjuskólinn/FSU. Þema málþingsins var annarsvega matur úr skóginum og hins vegar umhirða skógarins.