Fréttir

true

Snæsmiðjan opnuð í Grundarfirði – opið hús síðdegis

Í dag, föstudaginn 6. október, var opnuð ný verslun í Grundarfirði. Verslunin er í húsakynnum Vélsmiðju Grundarfjarðar en það eru eigendur vélsmiðjunnar sem standa að versluninni. Þeir Þórður Magnússon og Remigijus Bilevicius eru eigendur Vélsmiðju Grundarfjarðar en tæp átta ár eru síðan hún var sett á laggirnar. Fyrst um sinn var starfsemin einungis tengd vélsmiðjunni…Lesa meira

true

Boða til mótmæla á Austurvelli á morgun gegn sjókvíaeldi

Landssamband veiðifélaga efnir í samstarfi við nokkur náttúruverndarsamtök til fjöldamótmæla á morgun, laugardaginn 7. október kl. 15:00, á Austuvelli í Reykjavík. Mótmælin eru undir yfirskriftinni „Samstaða gegn sjókvíaeldi!“ Í tilkynningu frá LV segir að farin verði kröfuganga frá Háskóla Íslands niður á Austurvöll þar sem mótmælin verða. „Ráðherra eða talsmanni Alþingis verður afhent kröfuskjal og…Lesa meira

true

Westside fór í gær fram í Grundarfirði – myndir

Nemendur framhaldsskólanna þriggja á Vesturlandi hittust í hinni árlegu Westside keppni í Grundarfirði í gær. Fjölbrautaskóli Snæfellinga var í gestgjafahlutverki að þessu sinni og tók á móti nemendum Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Efnt var til keppni í hinum ýmsu greinum sem byggðu á styrk og gáfnafari. Keppt var í bandí,…Lesa meira

true

Þingmenn hittu sveitarstjórnarfólk í kjördæmaviku

Kjördæmavika stendur nú yfir og eru alþingismenn á ferð og flugi þessa dagana. Fyrr í vikunni hittu þrír þingmenn Norðvesturkjördæmis, þeir Stefán Vagn Stefánsson, Teitur Björn Einarsson og Eyjólfur Ármannsson, sveitarstjórnarfulltrúa á Vesturlandi í Landnámssetrinu í Borgarnesi. „Á fundinum fóru fulltrúar sveitarfélaganna yfir helstu áherslur sínar í ýmsum verkefnum. Efst á baugi voru samgöngumál, orkumál,…Lesa meira

true

Byggðarráð samþykktir viðauka við fjárhagsáætlun

Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti fyrir sitt leiti á fundi í gær viðauka við fjárhagsáætlun sveitarfélagsins 2023. Í honum er sett inn áætlun um 200 milljóna króna auknar útsvarstekjur og auknar tekjur frá Jöfnunarsjóði fyrir 23 milljónir. Þá er sett inn áætlun um breytingar á launaáætlun í nokkrum deildum sem eykur kostnað á árinu um 75,4 milljónir.…Lesa meira

true

Guð blessi Ísland! – Fimmtán ár frá Hruni

„Guð blessi Ísland“ eru orð sem Geir Haarde þáverandi forsætisráðherra lauk með sjónvarpsávarpi sínu til þjóðarinnar síðdegis 6. október árið 2008, fyrir réttum 15 árum. Þau lét hann falla eftir að ljóst var að íslenskir bankar voru á leið í þrot. Næstu mánuði og ár hafði Hrunið afgerandi áhrif á afkomu heimila og fyrirtækja í…Lesa meira

true

Ráðleggja ekki loðnuveiðar

Hafrannsóknastofnun hefur lagt til að engar loðnuveiðar verði leyfðar fiskveiðiárið 2023-24. Sú ráðgjöf er samhljóma fyrirliggjandi upphafsráðgjöf sem byggði á mælingum á ungloðnu haustið 2022. Ráðgjöfin verður endurmetin þegar niðurstöður bergmálsmælinga á stærð veiðistofnsins liggja fyrir í byrjun næsta árs. Bergmálsmælingar voru gerðar á rannsóknarskipunum Árna Friðrikssyni og Tarajoq á tímabilinu 23. ágúst til 23.…Lesa meira

true

Hreystitæki komin upp á þremur stöðum í Borgarbyggð

Starfsmenn áhaldahúss Borgarbyggðar hafa lokið við uppsetningu á hreystitækjunum á þremur stöðum. Þau eru við göngustíg aftan við Kjartansgötu í Borgarnesi, á Hvanneyri við göngustíg í námunda við ærslabelg og neðan við Bjössaróli í Borgarnesi. Á tækjunum eru leiðbeiningar hvernig megi nota þau. Á upplýsingasíðu Borgarbyggðar eru íbúar hvattir til að fá sér göngutúr og…Lesa meira

true

Þrjú ný björgunarskip í flotann

Endurnýjun björgunarskipa og báta Slysavarnafélagsins Landsbjargar heldur áfram og nú hafa tveir nýir Rafnarsbátar bæst í flota félagsins. Annar hjá Björgunarsveitinni Garðari á Húsavík og hinn hjá Björgunarsveitinni Sæbjörgu á Flateyri. Nýju bátarnir eru af gerðinni Rafnar 1100 og ná allt að 40 hnúta ganghraða sem styttir viðbragðstímann all verulega og eykur öryggi sjófarenda til…Lesa meira

true

Fjarlægja ónýta bíla

Á vegum Snæfellsbæjar hefur að undanförnu verið unnið við að fjarlægja bíla sem ekki eru á númerum. Fyrirtækið Bílaaðstoð og flutningar hefur aðstoðað við að taka bílana og koma þeim á endurvinnslustöð. Hér má sjá þrjá bíla sem voru fjarlægðir í Rifi á miðvikudaginn á flutningabíl frá Bílaaðstoð og flutningum sem staðsett er í Ólafsvík.Lesa meira