
Þórður og Remek í nýju versluninni. Ljósmyndir: TFK
Snæsmiðjan opnuð í Grundarfirði – opið hús síðdegis
Í dag, föstudaginn 6. október, var opnuð ný verslun í Grundarfirði. Verslunin er í húsakynnum Vélsmiðju Grundarfjarðar en það eru eigendur vélsmiðjunnar sem standa að versluninni. Þeir Þórður Magnússon og Remigijus Bilevicius eru eigendur Vélsmiðju Grundarfjarðar en tæp átta ár eru síðan hún var sett á laggirnar. Fyrst um sinn var starfsemin einungis tengd vélsmiðjunni og þess háttar vinnu en með tímanum hefur innflutningur frá Evrópu orðið stærri hluti af rekstrinum ásamt því að vera með bifreiðaverkstæði. Opið hús verður í dag frá klukkan 16:30-18:00 og bjóða eigendurnir gesti velkomna að kíkja við.