Á loðnuveiðum. Ljósm. FH.

Ráðleggja ekki loðnuveiðar

Hafrannsóknastofnun hefur lagt til að engar loðnuveiðar verði leyfðar fiskveiðiárið 2023-24. Sú ráðgjöf er samhljóma fyrirliggjandi upphafsráðgjöf sem byggði á mælingum á ungloðnu haustið 2022. Ráðgjöfin verður endurmetin þegar niðurstöður bergmálsmælinga á stærð veiðistofnsins liggja fyrir í byrjun næsta árs. Bergmálsmælingar voru gerðar á rannsóknarskipunum Árna Friðrikssyni og Tarajoq á tímabilinu 23. ágúst til 23. september.

Ráðleggja ekki loðnuveiðar - Skessuhorn