Guð blessi Ísland! – Fimmtán ár frá Hruni

„Guð blessi Ísland“ eru orð sem Geir Haarde þáverandi forsætisráðherra lauk með sjónvarpsávarpi sínu til þjóðarinnar síðdegis 6. október árið 2008, fyrir réttum 15 árum. Þau lét hann falla eftir að ljóst var að íslenskir bankar voru á leið í þrot. Næstu mánuði og ár hafði Hrunið afgerandi áhrif á afkomu heimila og fyrirtækja í landinu; fyrirtækjum fækkaði og fjöldi fólk missti heimili sín, svo dæmi séu nefnd. Því er tímabilið einkennt í sögulegu samhengi með stóru „H“ í orðinu Hrun. Tímabil sem almenningur má ekki gleyma, heldur draga lærdóm af, en ekki síður stjórnmálamenn og atvinnulíf því slíkt ástand ber að forðast. Orð Geirs urðu fleyg sem tákn fyrir kreppuna sem fylgdi hér á landi.

Guð blessi Ísland! - Fimmtán ár frá Hruni - Skessuhorn