
Síðastliðinn mánudag klæddi fólk sig upp og fagnaði þjóðhátíðardeginum, en lýðveldið varð þar að auki 80 ára í ár og því góðum áfanga að fagna. Hér á opnunni birtum við myndir héðan og þaðan af Vesturlandi.Lesa meira

Síðastliðinn mánudag klæddi fólk sig upp og fagnaði þjóðhátíðardeginum, en lýðveldið varð þar að auki 80 ára í ár og því góðum áfanga að fagna. Hér á opnunni birtum við myndir héðan og þaðan af Vesturlandi.Lesa meira

Borgfirðingabók, ársrit Sögufélags Borgarfjarðar (SFB), er komin út í 25. skipti en eins og nafnið ber með sér kemur hún út á hverju ári. Samfelld útgáfa hefur verið frá árinu 2004 en í byrjun níunda áratugarins komu út fjórir árgangar í þremur bókum. Starfssvæðið er núna frá Botnsá í Hvalfirði að Haffjarðará en náði áður…Lesa meira

Bændur á nokkrum bæjum á Snæfellsnesi hófu slátt fyrir síðustu helgi. Byrjað var að slá í Staðarsveitinni og Breiðuvík á föstudaginn. Bændurnir Þórunn Hilma Svavarsd Poulsen og Snæbjörn Viðar Narfason á Neðri-Hóli í Staðarsveit hófu slátt á Hofgarðatúni en einnig slógu þau Guðjón Jóhannesson og Guðný Heiðbjört Jakobsdóttir á Syðri-Knarrartungu heimatúnið en einnig tún á…Lesa meira

Í liðinni viku voru um 55 ökumenn stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi en eins og venjulega á sumrin heldur lögregla mjög öflugu umferðareftirliti úti á vegum á Vesturlandi. Sá sem hraðast ók í vikunni var tekinn á Borgarfjarðarbrúnni á 189 kílómetra hraða. Ökumaðurinn var á sportbíl og er grunaður um…Lesa meira

Ungmenna- og íþróttafélag Hvalfjarðarsveitar gaf nú vikunni leikskólanum Skýjaborg sex sæta fjölburakerru. Mikil gleði var bæði hjá börnum og starfsfólki við móttöku gjafarinnar. Við afhendinguna hlupu nokkur börn út á sokkunum til að prófa. Kerran mun leysa gömlu kerruna af hólmi, sem er þung og erfið aksturs. „Kaupin koma bæði börnum og starfsfólki til góðs…Lesa meira

Fyrsti laxinn veiddist í Langá á Mýrum í morgun. „Já, hann tók fluguna Iðuna. Ég hef oft fengið lax á hana hérna í byrjun veiðitímabils; hún er sterk þá,“ sagði Sigurjón Gunnlaugsson við Langá á Mýrum. Áin var formlega opnuð í morgun en þessi fiskur var númer tvö í ánni á land, fjögurra punda hrygna.…Lesa meira

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallað út klukkan 19:15 í gærkvöldi að verksmiðju Elkem Ísland á Grundartanga. Þar hafði orðið óhapp þegar fljótandi málmur fór á villigötur. Enginn slasaðist við óhappið en hlúa þurfti að einum starfsmanni verksmiðjunnar sem fann til eymsla. Þetta staðfestir Álfheiður Ágústsdóttir forstjóri Elkem Ísland á Grundartanga í samtali við Skessuhorn.Lesa meira

Það var ansi mikið undir þegar gömlu stórveldin, ÍA og KR, mættust á Elkem vellinum á Akranesi í gærkvöldi. Skagamenn gátu með sigri komið sér upp í fjórða sætið og KR reynt að koma sér ofar á töfluna eftir slæmt gengi undanfarið. Átta ár voru frá síðasta sigurleik ÍA á KR í deildinni og það…Lesa meira

„Já, við vorum að opna Flókadalsá í Borgarfirði og það var gaman. Það eru komnir laxar í ána,“ sagði Hjörtur Arnar Óskarsson er við heyrðum í honum við Flókadalsá í gærmorgun. Við opnunina veiddust fimm laxa og töluvert af fiski var að sögn komið á svæðið. „Við vorum á svæði tvö. Þetta er skemmtileg veiðiá…Lesa meira

Aðsókn í Fab Lab Smiðju Vesturlands sem staðsett er í Breið nýsköpunarsetri á Akranesi hefur aukist mikið síðustu mánuði og er stækkun framundan. Nýlega fékk smiðjan allt rýmið sem hún er staðsett í til umráða og fylgja því miklar endurbætur og nýjungar. Fram kemur á FB síðu Fab Lab Smiðju Vesturlands að vegna aukinnar aðsóknar…Lesa meira