
Sigurjón Gunnlaugsson með annan laxinn úr Langá á Mýrum. Ljósm. gb
Fyrstu laxarnir á land úr Langá
Fyrsti laxinn veiddist í Langá á Mýrum í morgun. „Já, hann tók fluguna Iðuna. Ég hef oft fengið lax á hana hérna í byrjun veiðitímabils; hún er sterk þá,“ sagði Sigurjón Gunnlaugsson við Langá á Mýrum. Áin var formlega opnuð í morgun en þessi fiskur var númer tvö í ánni á land, fjögurra punda hrygna. Smálaxinn er því mættur snemma í ána þetta árið, en stærri fiskar voru að stökkva þar sem veiðimenn köstuðu flugunni við ána. En lax hefur fyrir nokkru sést og það boðar gott fyrir sumarið.