Fréttir

true

Grásleppusjómenn fagna lengingu veiðitímabilsins – myndasyrpa

Það var létt yfir sjómönnum á Akranesi sem voru að landa afla sínum síðdegis í gær. Veðrið var með besta móti; logn og vorilmur í lofti. Línubáturinn Eskey var m.a. að landa 12 tonna blönduðum afla en uppistaðan var stór þorskur. Þá kom Ingi Rúnar AK að landi með um eitt tonn af grásleppu en…Lesa meira

true

Hlynur Blær gefur bílum nýjan blæ

Bifreið blaðamanns Skessuhorn var orðinn dálítið skítug eftir akstur á misgóðum vegum Vesturlands undanfarnar vikur. Brá blaðamaður á það ráð að hitta á Hlyn Blæ Tryggvason á Hálsum í Skorradal en hann hefur verið að bjóða upp á bílaþrif í bílskúr foreldra sinna heima á Hálsum og nefnir fyrirtækið sitt Hálsabón. Hlynur er sonur Kristínar…Lesa meira

true

Brúin komin á sinn stað yfir Berjadalsá

Félagar í Rótarýklúbbi Akraness settu brúna yfir Berjadalsá í Akrafjalli síðasta laugardag og fengu til þess góða aðstoð. Veðrið var fremur leiðinlegt, suddi og fremur mikið í ánni. Verkið gekk samt mjög vel enda félagar orðnir vanir að gera þetta á hverju ári. Vonandi mun brúin nýtast vel fyrir göngufólk í allt sumar enda margir…Lesa meira

true

ÞB Borg reisir glæsihýsi í Stykkishólmi

Blaðamaður Skessuhorns ók niður Aðalgötu í Stykkishólmi fyrir helgi og kom þá auga á glæsilegt hús sem verið var að vinna í. Þetta fallega hús var klárað að utan nú í febrúar mánuði og standa nú framkvæmdir yfir innandyra en vonir eru til að verkið verði klárað nú í sumar. Framkvæmdaraðilinn er ÞB Borg ehf.…Lesa meira

true

Brást illa við afskiptum lögreglu

Í liðinni viku voru höfð afskipti af rúmlega 30 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Sá sem hraðast ók mældist á 134 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. Einn ökumaður var stöðvaður og er grunaður um ölvun við akstur, var hann handtekinn en sleppt að sýnatöku lokinni. Einn ökumaður…Lesa meira

true

Fjölmenningarskóli Vesturlands tekinn til starfa

Mörg og ólík verkefni framundan til að slípa samfélagið saman Í marsmánuði fékk Símenntun Vesturlands styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála. Styrkurinn var sá hæsti af þeim sem var útdeilt og verður hann nýttur í nýjan Fjölmenningarskóla Vesturlands þar sem Jovana Pavlovic er verkefnastýra. Blaðamaður settist niður með Guðrún Völu Elísdóttur, framkvæmdastjóra Símenntunar Vesturlands og Jovönu Pavlovic…Lesa meira

true

Framkvæmdir komnar vel á veg í Víkurhverfi

Jarðvegsframkvæmdir við nýtt íbúðahverfi; Víkurhverfi í Stykkishólmi, eru þessa dagana í fullum gangi. Fyrirhugað er að gatnagerð verði lokið um miðjan júní. Þarna verða 12 nýjar íbúðarhúsalóðir til, en þær voru auglýstar í vetur. Verktaki við framkvæmdirnar er BB & synir. Lóðirnar eru í mikilli nánd við náttúru og afþreyingu eins og sjá má, m.a.…Lesa meira

true

Vill byggja upp ullarvinnslu fyrir Dalina

Rætt við Ingibjörgu Þórönnu Steinudóttur, frumkvöðul í Rauðbarðaholti í Hvammssveit Ef allt gengur eftir verður nýju afurðafyrirtæki ýtt úr vör vorið 2025 í Dölum, því margrómaða landbúnaðarhéraði. Á bænum Rauðbarðaholti í Hvammssveit stefnir Ingibjörg Þóranna Steinudóttir að því að setja á fót ullarvinnslu, sem þegar hefur fengið nafnið Urður, og vonast hún til að geta…Lesa meira

true

Hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðslu aldrei verið meiri

Á heimasíðu Hagstofu Íslands kemur fram að hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðslu ársins 2023 nam 8,8% samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum ferðaþjónustureikninga og hefur aldrei verið stærri. Til samanburðar nam hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðslu 7,5% árið 2022 og að jafnaði 8,2% á tímabilinu 2016 til 2019, fyrir kórónuveirufaraldurinn. Heildarneysla ferðamanna, innlendra og erlendra, hérlendis nam rúmlega 845 milljörðum króna…Lesa meira

true

Veiðihús við Andakílsá að taka á sig mynd

Nýtt veiðihús er nú risið við Andakílsá í Borgarfirði á sömu lóð og gamla veiðihúsið stóð. Það eru PJ Byggingar ehf sem byggja. Smiðir voru að störfum úti sem inni þegar blaðamaður Skessuhorns leit við fyrir helgi. Voru þeir að ljúka frágangi við þakkant hússins en einnig voru smiðir að störfum inni að klæða með…Lesa meira