
Páll Vignir Þorbergsson og Þorbergur Bæringsson. Ljósm. hig
ÞB Borg reisir glæsihýsi í Stykkishólmi
Blaðamaður Skessuhorns ók niður Aðalgötu í Stykkishólmi fyrir helgi og kom þá auga á glæsilegt hús sem verið var að vinna í. Þetta fallega hús var klárað að utan nú í febrúar mánuði og standa nú framkvæmdir yfir innandyra en vonir eru til að verkið verði klárað nú í sumar. Framkvæmdaraðilinn er ÞB Borg ehf. en hönnuðir hússins eru metnaðarfullir ungir menn frá Stykkishólmi, þeir Hjörleifur Sigurþórsson aðalhönnuður og Ásmundur Þrastarson verkfræðingur.