Fréttir

true

Land og verk með lægsta tilboðið

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar síðasta fimmtudag voru tilboð kynnt í endurgerð á íþróttahúsinu á Vesturgötu auk þess sem Anna María Þráinsdóttir verkefnastjóri fór yfir tilboðin. Kostnaðaráætlun verksins var 228.230.730 kr. Eftir yfirferð tilboða voru gild tilboð eftirfarandi: Land og verk ehf: 231.596.999 kr., Trésmiðja Þráins E. Gíslasonar ehf: 248.213.283 kr., E. Sigurðsson ehf:…Lesa meira

true

Heldri félaga deild Björgunarsveitarinnar Brákar stofnuð

Í gær var haldinn kaffifundur í heimkynnum Björgunarsveitarinnar Brákar þar sem stofnuð var heldri félaga deild sveitarinnar. Markmið fundarins var að fá björgunarsveitarfólk sem er komið á aldur eða komið í önnur verkefni, til að hittast í spjalli. Segja sögur og vera með í verkefnum sem Brák tekur sér fyrir hendur. Í samtali við Vigdísi…Lesa meira

true

Vigdís Häsler hætt störfum hjá Bændasamtökunum

Framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands, Vigdís Häsler, hefur látið af störfum. Vigdís hefur sinnt starfinu síðastliðin þrjú ár en hún segist skilja stolt við starfið. Frá þessu greinir Vigdís í færslu á Facebook-síðu sinni. Vigdís segir starfið hafa verið skemmtilegt og gefandi og hún hafi komið að mörgum krefjandi verkefnum, stórum sem smáum. „Samtökin standa núna styrkum…Lesa meira

true

Kári vann stórsigur á Uppsveitum í Mjólkurbikarnum

Fullt af leikjum fóru fram í fyrstu umferð Mjólkurbikars karla í knattspyrnu um helgina og þrjú lið af af Vesturlandi voru í eldlínunni. Kári komst í aðra umferð en Skallagrímur og Reynir Hellissandi eru úr leik þetta árið. Káramenn sem leika í 3. deild fóru létt með fimmtu deildar lið Uppsveita í Akraneshöllinni á laugardaginn.…Lesa meira

true

Deildarmyrkvi á sólu sýnilegur í dag ef veður leyfir

Í dag, mánudaginn 8. apríl, sést deildarmyrkvi á sólu frá Íslandi öllu, ef veður leyfir. Frá Reykjavík sést allur myrkvinn en frá Austurlandi sest sólin á meðan hann stendur yfir. Tunglið hylur um og yfir 40% af sólinni frá Íslandi séð en í Mexíkó, Bandaríkjunum og Kanada verður almyrkvi. Til að sjá deildarmyrkvann þarf að…Lesa meira

true

Háskólar geta nú boðið upp á viðurkennt örnám

Frumvarp um breytingar á lögum um háskóla sem snúa að örnámi og prófgráðum úr diplóma- og viðbótarnámi var samþykkt á Alþingi fyrir páska. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins. Örnám í formi viðurkenndra námseininga Áform um þetta voru fyrst kynnt í lok árs 2023. Hingað til hefur örnám ekki verið sérstaklega nefnt í lögum…Lesa meira

true

Gylfi Sig í aðalhlutverki í sigri Vals á ÍA

Valur og ÍA áttust við í fyrstu umferð Bestu deildarinnar í knattspyrnu í gærkvöldi og var leikurinn á N1-vellinum að Hlíðarenda. Valsmenn eru til alls líklegir á Íslandsmótinu eftir að hafa fengið Gylfa Sigurðsson til liðs við sig fyrir tímabilið á meðan Skagamenn eru nýliðar í deildinni og þurfa að fóta sig á nýjan leik…Lesa meira

true

Vanda skal til fóðrunar heimilishæna

Matvælastofnun hefur á heimasíðu sinni vakið athygli á ráðleggingum um fóðrun heimilishæna með matarafgöngum og hvetur til fyllstu varúðar. Sjúkdómsvaldar geta komist í hópinn Hænur eru gjarnan fóðraðar með afgöngum úr eldhúsum til að sporna við matarsóun. Hins vegar ber að gæta fyllstu varúðar til að koma í veg fyrir að sjúkdómsvaldar berist í fuglahópinn…Lesa meira

true

Lækkun á ráðlögðum grásleppuafla

Hafrannsóknastofnun leggur til á heimasíðu sinni að veiðar á grásleppu fiskveiðiárið 2023/2024 verði ekki meiri en 4030 tonn. Er það um 9% lækkun milli ára. Ráðgjöfin byggir að mestu á stofnvísitölu úr stofnmælingu botnfiska í mars 2024 en einnig frá árinu á undan. Vísitölur þessara tveggja ára voru svipaðar og vel undir langtíma meðaltali og…Lesa meira

true

Finnst alveg rosalega gaman að ferðast

Bæjarfulltrúinn Líf Lárusdóttir var í Yfirheyrslunni í síðasta blaði Skessuhorns Hvar ertu fædd og hvenær? Ég er fædd á Sjúkrahúsinu á Akranesi þann merkis dag 17. júní árið 1991. Hvernig myndir þú lýsa þér í þremur orðum? Fyrsta orðið sem kemur upp í hugann er drífandi, einfaldlega vegna þess að mig langar til þess að…Lesa meira