Finnst alveg rosalega gaman að ferðast

Bæjarfulltrúinn Líf Lárusdóttir var í Yfirheyrslunni í síðasta blaði Skessuhorns

Hvar ertu fædd og hvenær? Ég er fædd á Sjúkrahúsinu á Akranesi þann merkis dag 17. júní árið 1991.

Hvernig myndir þú lýsa þér í þremur orðum? Fyrsta orðið sem kemur upp í hugann er drífandi, einfaldlega vegna þess að mig langar til þess að vera drífandi fyrir sjálfan mig og fólkið í kringum mig og þess vegna legg ég mig fram við það. Góður húmor er næsta orð og ég fékk smá aðstoð frá ástkærum eiginmanni með þriðja orðið og skemmtilegt nokk þá sagði hann nægjusöm.

Áttu gæludýr? Nei en það mætti alveg uppljóstra því á þessum vettvangi að sú umræða er komin úr nefnd og langleiðina í kosningu á meðal helstu hagsmunaaðila.

Hvers saknarðu mest frá því í gamla daga? Ég held ég sakni þess einna mest þegar eingöngu fréttagláp og blaðalestur komu í veg fyrir fulla athygli, ekki blessaðir símarnir.

Hvað færðu þér ofan á pizzuna þína? Pepperóní, laukur og sveppir er þrenna sem klikkar seint.

Hvað er uppáhalds nammið þitt? Það fer dálítið eftir stemningu en gott súkkulaði klikkar seint, nema það sé geymt í kæliskáp. Þá er líka fjandinn laus.

Hvaða tungumál værir þú til í að kunna? Ég væri til í að kunna spænsku og geta notað hana. Ég tek það samt fram að ég hef gert heiðarlega tilraun til þess samhliða meistaranáminu mínu þegar ég bjó í Barcelona. En Börsungar þóttust ekkert skilja þegar ég byrjaði að reyna að ræða málin heldur hvöttu mig eindregið til að leggja þennan spænskudraum á hilluna og snúa mér að katalónsku.

Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Mér finnst alveg rosalega gaman að ferðast, bæði innanlands og utanlands. Þá finnst mér alveg sérstaklega gaman að halda matarboð og hvers kyns veislur í raun og finnst algjörlega nauðsynlegt að halda upp á allt sem hægt er að halda upp á. Einnig finnst mér mjög gaman að spila golf og reyndar heillar margs konar hreyfing, kannski sérstaklega þessa dagana þegar hún er af skornum skammti.

Ertu hjátrúarfull? Ég get ekki beint sagt það en ég hef samt mikla trú á því að það sem maður setur frá sér í kosmósinn fái maður í einhverju formi aftur til baka. Hvort sem það er einlægt bros, góð orka eða aðstoð.

Hvað myndi bíómynd um þig heita? Glænýtt Líf

Hver er uppáhalds mánuðurinn? Það er rosalega erfitt að gera upp á milli. Ég er á þeim stað að hver mánuður hafi sína sérstöðu og sinn sjarma, en ef ég legg mjög hart að mér þá er það líklegast bara júní.

Hvað ertu mest hrædd við? Ég hræðist það mest að þurfa að horfa á fólkið mitt ganga í gegnum alvarleg veikindi.

Hver er uppáhalds skyndibitinn? Ég er alveg húkt á indverskum mat og hef verið mjög lengi svo ég ætla að segja Austurlandahraðlestin. Hér heima nefni ég skútupylsu og ætla ekkert að skammast mín fyrir það, sú ágæta djúpsteikta pylsa hefur gert sitt gagn í gegnum árin.

Hver er uppáhalds staðurinn þinn á Íslandi? Það er að komast alveg rosalega góð reynsla á veru mína í Vesturhópi. Þar kemur stórfjölskyldan oftar en ekki saman og á notalega stund. Í raun er komin svo góð reynsla að ég þarf ekki annað en að keyra niður að vatninu og þá er eins og hægist eitthvað aðeins á tímanum.

Hver er minnisstæðasta gjöfin sem þú fékkst þegar þú varst lítil? Kettlingurinn sem birtist á stofuborðinu þegar við bróðir minn vorum yngri. Hann var með rauða slaufu um hálsinn og fékk síðar nafnið Fríða.

Ef þú þyrftir að velja þér nýtt nafn hvað yrði þá fyrir valinu? Agla Móey.

Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Í raun hitt og þetta. Ég tók tímabil þar sem ekkert annað en leikkona kom til greina, gott ef ég ætlaði ekki einhvern tímann að vera læknir líka en lengi vel var á óskalistanum að vinna við að skipuleggja brúðkaup.

Vandræðalegasta augnablikið? Því miður er af nægu að taka hér, ég get nefnt eitt sem kemur upp í hugann strax. Forsetahjónin voru í opinberri heimsókn hjá okkur á Akranesi í desember 2022, frábær dagur en mér tókst samt, sem lítill aðdáandi vandræðalegra þagna, að spyrja Elizu hvernig henni líkaði starfið sem forsetafrú. Það er auðvitað ekki formlegt starf en þess má geta að hún er einmitt rithöfundur og ýmistlegt fleira. Það var vandræðalegt…

Hvar sérðu þig eftir tíu ár? Ég hef eiginlega bara ekki hugmynd um það, hefði ég verið spurð að þessu fyrir tíu árum síðan þá er ekki víst að ég hefðir rambað á neitt einasta atriði rétt. En eitt er víst að ég verð nokkuð umkringd börnum í okkar eigu. Gott ef ég verð ekki bara líka farin að reka fyrirtæki þar sem ég fæ vonandi að nýta áhuga minn á markaðsmálum og viðburðastýringu og jafnvel vera með einn fót erlendis í bland við Skagann góða.

Ertu með eina sturlaða staðreynd um þig? Ég er útskrifuð úr sirkus skóla í Sviss og þó ekki hafi reynt mikið á þá gráðu þá skreyti ég mig reglulega með henni. Þá átti ég að heita Eþelín, í höfuðið á einhvers konar efni sem sett er á bíl en móðir mín var einmitt að læra fyrir bílprófið þegar hún gekk með mig, þá 16 ára gömul. Ég er alveg þokkalega sátt við að ekkert varð af því en það var víst presturinn sem stoppaði það af.

Finnst alveg rosalega gaman að ferðast - Skessuhorn