
Í héraðsdómi Vesturlands var 22. mars síðastliðinn kveðinn upp dómur í landamerkjadeilu eigenda tveggja jarða í Stafholtstungum í Borgarfirði en jarðirnar liggja sitthvorum megin við Norðurá. Stefnendur í málinu eru núverandi eigendur jarðarinnar Svarfhóls, þau Arnaldur Jón Gunnarsson og Unnur Karlsdóttir sem keyptu jörðina árið 2021. Stefndu þau H.J. Sveinssyni ehf., þinglýstum eiganda jarðarinnar Sólheimatungu.…Lesa meira








