Fréttir

true

Búið á Stóra Kálfalæk valið framfarabú ársins

Félag sauðfjárbænda í Borgarfjarðarhéraði hélt aðalfund sinn 13. mars síðastliðinn. Á fundinum var að venju valið það sem kallað er framfarabú ársins. Efst að þessu sinni var bú Unnar Sigurðardóttur, Boga Helgasonar og barna þeirra á Stóra-Kálfalæk á Mýrum. Á búinu hafa afurðir og frjósemi verið gríðarlega góðar undanfarin ár og hefur búið verið á…Lesa meira

true

Bjarkarhlíð þjónustar Vesturland og Vestfirði

Bjarkarhlíð er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins, dómsmálaráðuneytis, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Samtaka um kvennaathvarf, Stígamóta, Mannréttindaskrifstofu Íslands og Kvennaráðgjafarinnar. Bjarkarhlíð tók formlega til starfa 1. febrúar 2017 en síðan hafa þolendur ofbeldis af öllum kynjum átt kost á að sækja þjónustu þeim að kostnaðarlausu. Nú er í gangi verkefni þar sem fulltrúi frá Bjarkarhlíð fer…Lesa meira

true

Frestun á fundi

Fyrirhuguðum fundi um framtíðarmöguleika Breiðafjarðar, sem vera átti á Laugum í Sælingsdal á morgun, hefur verið frestað vegna veðurs og slæmrar spár. „Fundurinn verður þess í stað haldinn mánudaginn 25. mars nk. kl. 17 – 19.30,“ segir í tilkynningu.Lesa meira

true

Viðvaranir í gildi vegna veðurs – snjóflóðahætta á Vestfjörðum

Í gildi eru viðvaranir vegna lægðar sem gengur yfir landið. Gul viðvörun er fyrir Faxaflóasvæðið til klukkan 10 í fyrramálið, mánudag: „Norðaustan 15-23 m/s og snjókomu til fjalla, einkum norðantil á svæðinu. Búast má við skafrenningi með takmörkuðu eða lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Afmarkaðar samgöngutruflanir eru líklegar, lokanir á vegum. Fólki er bent á…Lesa meira

true

Eldgos á milli Hagafells og Stóra-Skógfells

Klukkan 20:23 í gærkvöldi hófst eldgos norðan við Grindavík. Upptökin voru nær Stóra-Skógfelli, á svipuðum stað og eldgosið sem varð 8. febrúar sl. Í upphafi þess gaus kröftuglega úr 3,5 kílómetra langri sprungu. Mjög hefur nú dregið úr krafti gossins, en það er þó virkt ennþá. Í nótt rann hraun yfir Grindavíkurveg nærri Bláa lóninu…Lesa meira

true

Rafeldsneytisframleiðsla á Grundartanga komin í skipulagsgátt

Verkefni sem nefnist „Framleiðsla rafeldsneytis á Grundartanga,“ er nú komið í umsagnarferli í skipulagsgátt stjórnvalda, en hægt verður að gera athugasemdir þar til 26. apríl næstkomandi. Framkvæmdin er á vegum Qair Íslandi ehf. og felst í framleiðslu vetnis og ammoníaks til að nota í orkuskiptum í stað jarðefnaeldsneytis. Það er fyrirtækið sjálft sem leggur fram…Lesa meira

true

Góður gangur í veiðum í febrúar

Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam 29,3 milljörðum króna í febrúar samkvæmt fyrstu bráðabirgðatölum Hagstofunnar sem birtar voru í síðustu viku. Það er tæplega 5% aukning í krónum talið miðað við febrúar í fyrra. Þar sem gengi krónunnar var um 3% sterkara í febrúar en í sama mánuði í fyrra er aukningin nokkuð meiri í erlendri mynt, eða…Lesa meira

true

Ungmennafélagið Afturelding í Reykhólasveit 100 ára

Fimmtudaginn 14. mars voru 100 ár liðin frá stofnun Ungmennafélagsins Aftureldingar. Félagið er eitt af aðildarfélögum í Ungmennasambandi Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga (UDN). Fram kemur á vef Reykhólahrepps að í fyrri tíð voru starfandi ungmennafélög í öllum hreppunum fimm í sýslunni, sem frá 1987 mynda saman Reykhólahrepp en þau voru: Ungmennafélagið í Flatey, stofnað 1909 (ekki…Lesa meira

true

Sambandsþing UMSB haldið á Hvanneyri

102. sambandsþing UMSB var haldið á Hvanneyri 13. mars síðastliðinn. Gestir ávörpuðu fundargesti, en Ómar Bragi Stefánsson framkvæmdastjóri móta UMFÍ, flutti ávarp um unglingalandsmótið sem fer fram í Borgarnesi um verslunarmannahelgina í ár. Eins kom Þórey Edda Elísdóttir fyrir hönd ÍSÍ og flutti ávarp en í leiðinni sæmdi hún silfurmerki ÍSÍ Oddnýju Evu Böðvarsdóttur og…Lesa meira