Viðvaranir í gildi vegna veðurs – snjóflóðahætta á Vestfjörðum

Í gildi eru viðvaranir vegna lægðar sem gengur yfir landið. Gul viðvörun er fyrir Faxaflóasvæðið til klukkan 10 í fyrramálið, mánudag: „Norðaustan 15-23 m/s og snjókomu til fjalla, einkum norðantil á svæðinu. Búast má við skafrenningi með takmörkuðu eða lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Afmarkaðar samgöngutruflanir eru líklegar, lokanir á vegum. Fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám.“

Á spásvæðinu Breiðafirði hefur tekið gildi gul viðvörun og er hún í allan dag og allan mánudaginn að auki, til miðnættis: „Norðaustan 15-23 m/s og snjókoma. Búast má við skafrenning með takmörkuðu eða lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Afmarkaðar samgöngutruflanir eru líklegar, lokanir á vegum. Fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám.

Óvissustigi vegna snjóflóðahættu hefur verið lýst yfir á norðanverðum Vestfjörðum. Þar tekur appelsínugul viðvörun gildi á miðnætti og gildir allan morgundaginn. „Spáð er norðaustan 15-23 m/s og snjókomu í dag en bætir í vind í nótt. Spár gera ráð fyrir langvarandi hríð á svæðinu fram á þriðjudag með tilheyrandi uppsöfnun á snjó. Búast má við skafrenningi með takmörkuðu eða lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum og að vegir undir bröttum fjallshlíðum lokist vegna snjóflóða. Ekki er talin hætta í byggð að svo stöddu en aðstæður geta breyst þegar líður á veðrið. Fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám. Snjóflóðavakt Veðurstofunnar fylgist vel með aðstæðum.“

Viðvaranir í gildi vegna veðurs – snjóflóðahætta á Vestfjörðum - Skessuhorn