Hér má sjá útlitsteikningu að framkvæmdinni þegar verksmiðjan verður fullbyggð. Myndvinnsla: Qair

Rafeldsneytisframleiðsla á Grundartanga komin í skipulagsgátt

Verkefni sem nefnist „Framleiðsla rafeldsneytis á Grundartanga,“ er nú komið í umsagnarferli í skipulagsgátt stjórnvalda, en hægt verður að gera athugasemdir þar til 26. apríl næstkomandi. Framkvæmdin er á vegum Qair Íslandi ehf. og felst í framleiðslu vetnis og ammoníaks til að nota í orkuskiptum í stað jarðefnaeldsneytis. Það er fyrirtækið sjálft sem leggur fram umhverfismatasskýrluna. Fram kemur í skýrslunni að reiknað er með að þegar mest er starfi um 350 manns við byggingaframkvæmdir en að jafnaði um 150-200. Þegar framleiðsla hefst er reiknað með að um 40-50 manns starfi við fyrsta áfanga og að fjöldi stöðugilda við fullbyggða framleiðslu verði um 120-150 manns.

Rafeldsneytisframleiðsla á Grundartanga komin í skipulagsgátt - Skessuhorn