Eldgos á milli Hagafells og Stóra-Skógfells

Klukkan 20:23 í gærkvöldi hófst eldgos norðan við Grindavík. Upptökin voru nær Stóra-Skógfelli, á svipuðum stað og eldgosið sem varð 8. febrúar sl. Í upphafi þess gaus kröftuglega úr 3,5 kílómetra langri sprungu. Mjög hefur nú dregið úr krafti gossins, en það er þó virkt ennþá. Í nótt rann hraun yfir Grindavíkurveg nærri Bláa lóninu og er hraunið ekki langt frá innviðum, svo sem vatnslögnum og fjarskiptabúnaði. Hraunflæði er einnig í suður og hafa varnargarðar ofan við byggðina í Grindavík rækilega sannað ágæti sitt. Stórar hrauntjarnir hafa þó myndast og er talið mögulegt að þegar þær byggjast enn frekar upp flæði hraun jafnvel yfir Suðurstrandarveg og út í sjó.

Meðfylgjandi er ljósmynd sem Björn Oddsson hjá Almannavörnum tók í nótt af hraunflæðinu.

Eldgos á milli Hagafells og Stóra-Skógfells - Skessuhorn