
Tilnefningum til embættis biskups Íslands lauk á hádegi í dag. Á vef Þjóðkirkjunnar segir að þeir þrír aðilar sem flestar tilnefningar hlutu hafi verið: Sr. Guðrún Karls Helgudóttir (65), Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson (60) og Sr. Elínborg Sturludóttir (52). Á tilnefningarskrá voru 167 en af þeim tilnefndu 160 eða 95,81%. Alls voru 48 prestar tilnefndir.…Lesa meira








