Fréttir

true

Dalabyggð auglýsir eftir tillögu að verki við innkomu í Búðardal

Sveitarfélagið Dalabyggð kallar eftir tillögum að frumhönnun á aðkomutákni sem býður fólk velkomið í þéttbýliskjarnann Búðardal. Um er að ræða verk sem staðsett verður við innkomu í þorpið en eftir er að velja endanlega staðsetningu. Tilgangur með því að auglýsa eftir hönnun er að fá fram tillögu að verki sem best er fallin til framkvæmdar.…Lesa meira

true

Bókaklúbburinn Þráður í Borgarnesi

Á bókasafninu í Borgarnesi er bókaklúbburinn Þráður starfandi en félagar í honum lesa eina ákveðna bók í mánuði og ræða svo um hana á mánaðarlegum fundum sínum í Safnahúsinu. Oft eru ýmsar aðrar bækur og önnur málefni rædd í leiðinni. Bækurnar sem lesnar hafa verið spanna vítt svið skáldsagna, frá ýmsum tímum og ýmsum stöðum…Lesa meira

true

Rauða rósin fær byggingarrétt á Kveldúlfsgötu 30

Byggðarráð Borgarbyggðar hefur samþykkt að úthluta lóðinni Kveldúlfsgötu 30 í Borgarnesi til fyrirtækisins Rauðu rósarinnar ehf. Þar verður heimild til ríflega þúsund fermetra byggingarmagns og a.m.k. tólf íbúðir gætu orðið í húsinu. Áður hafði byggðarráð kallað eftir frekari gögnum á grundvelli reglna um úthlutun lóða í sveitarfélaginu, en tvö fyrirtæki höfðu falast eftir lóðinni. Til…Lesa meira

true

Höfnuðu því að falla frá vinnu við sameiningu

Á fundi hreppsnefndar Skorradalshrepps síðastliðinn miðvikudag var lagt fram erindi frá Huldu Guðmundsdóttur á Fitjum vegna borgarafundar Skorradalshrepps sem haldinn var í Brún 29. janúar síðastliðinn, og ítarlega var fjallað um í Skessuhorni. Lagði Hulda til við hreppsnefnd Skorradalshrepps að hún aðhafist ekkert frekar í sameiningarmálum hreppsins á yfirstandandi kjörtímabili. „Jafnframt að haldinn verði opinn…Lesa meira

true

Innköllun á skinku frá Stjörnugrís vegna listeriu

Matvælastofnun varar við neyslu á nokkrum framleiðslulotum af skinku af vissum vörumerkjum frá Stjörnugrís vegna grun um Listeria monocytogenes. Hér er um ítrekaða tilkynningu að ræða. „Stjörnugrís hf. hefur ákveðið í samráði við MAST að innkalla alla skinku í varúðarskyni með best fyrir dagssetningu 18. mars 2024 og fyrir þann tíma. Þetta gerir Stjörnugrís hf.…Lesa meira

true

Framundan er verulegur skortur á rafvirkja menntuðu fólki

Stjórnendur fyrirtækja í rafiðnaði innan Samtaka rafverktaka áætla að ráða þurfi 800 rafvirkja til starfa á næstu fimm árum. Stjórnendurnir segja að skortur á starfsfólki hafi heft vöxt fyrirtækja í greininni á síðustu árum. Samkvæmt nýlegri könnun segjast 67% stjórnenda fyrirtækja í rafiðnaði erfiðleika við að finna rétt starfsfólk hafa heft vöxt fyrirtækisins á síðustu…Lesa meira

true

Bjarki Berg sigraði í hæfileikakeppni Arnardals og grunnskólanna á Akranesi

Hæfileikakeppni félagsmiðstöðvarinnar Arnardals og grunnskólanna á Akranesi fór fram í Bíóhöllinni í gærkvöldi fyrir fullu húsi. Mikil stemning var á meðal áhorfenda sem horfðu á nemendur í 8.-10. bekk fara á kostum með alls konar atriði. Mest var um söng- og tónlistaratriði á hæfileikakeppninni þar sem heyra mátti meðal annars rokk, rapp og hugljúf lög…Lesa meira

true

Þingflokkur farinn í ferðalag – Myndasyrpa

Kjördæmavika er nú framundan á Alþingi og lauk þingstörfum fyrir hlé seint í gærkvöldi. Sjálfstæðisflokkurinn er nú haldinn í ferðalag og var opinn fundur með þingmönnum haldinn í hádeginu í dag í Vinaminni á Akranesi. Þaðan er förinni heitið norður í land en klukkan 15 verður fundur í fjósinu á Bessastöðum í Húnaþingi vestra og…Lesa meira

true

Snjór kom ökumönnum á óvart

Mikið álag var á björgunarsveitir á Vesturlandi og Norðurlandi vestra í gærkvöldi og nótt. Koma þurfti ökumönnum um hundrað ökutækja til aðstoðar. Þessi vetrarfærð virðist hafa komið ökumönnum á óvart og í vandræði. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að þetta hafi byrjað seinni partinn í gær á Snæfellsnesi. Þar voru þó nokkrir sem lentu…Lesa meira

true

Húðvaktin býður upp á nýja þjónustu í húðlækningum

Húðvaktin er fyrsta þjónusta sinnar tegundar hér á landi og byggist á húðlækningum á netinu. Starfsemin fór í gang í byrjun þessa árs. Á bak við fyrirtækið eru þrír einstaklingar sem allir hafa sterka tengingu hingað á Vesturland. Þetta eru systkinin Bjarni Kristinn og Jenna Huld Eysteinsbörn, en þau ólust upp í Eskiholti í Borgarhreppi,…Lesa meira