Höfnuðu því að falla frá vinnu við sameiningu

Á fundi hreppsnefndar Skorradalshrepps síðastliðinn miðvikudag var lagt fram erindi frá Huldu Guðmundsdóttur á Fitjum vegna borgarafundar Skorradalshrepps sem haldinn var í Brún 29. janúar síðastliðinn, og ítarlega var fjallað um í Skessuhorni. Lagði Hulda til við hreppsnefnd Skorradalshrepps að hún aðhafist ekkert frekar í sameiningarmálum hreppsins á yfirstandandi kjörtímabili. „Jafnframt að haldinn verði opinn íbúafundur um framtíð hreppsins án milliliða,“ eins og sagði í erindinu sem tólf íbúar Skorradalshrepps rita undir.

Höfnuðu því að falla frá vinnu við sameiningu - Skessuhorn