Fréttir

true

Sindri Karl Sigurjónsson sló sautján ára gamalt Íslandsmet

Um síðustu helgi fór fram MÍ innanhússmót í frjálsum í Laugardalshöll. Sindri Karl Sigurjónsson frá UMSB bætti þar aldursflokkametið í 3000m hlaupi í flokki pilta 15 ára. Hann hljóp á tímanum 9:40,81 mín en fyrra aldursflokkamet átti Fannar Blær Austar Egilsson (USÚ), á tímanum 9:45,55 mín. Það met var frá árinu 2007.Lesa meira

true

Íslendingar orðnir fjögur hundruð þúsund talsins

Samkvæmt skráningu í þjóðskrá eru einstaklingar með skráð lögheimili á Íslandi orðnir 400 þúsund talsins. „Þetta er þó lifandi tala og líkur á því að hún verði breytileg í kringum 400 þúsund í einhverja daga því á hverjum degi eru margar skráningar í þjóðskrá sem hafa áhrif á heildarfjölda lögheimilisskráninga,“ segir í tilkynningu frá Þjóðskrá.…Lesa meira

true

Skallagrímur vann öruggan sigur á Snæfelli

Skallagrímur tók á móti Snæfelli í Fjósinu í Borgarnesi í 1. deild karla í körfu í sannkölluðum Vesturlandsslag á föstudagskvöldið. Fyrir leik var staða liðanna í deildinni nokkuð ólík, Skallagrímur var með 16 stig í 5.-7. sæti á meðan Snæfell var í því neðsta með fjögur stig. Það sýndi sig þó ekki alveg í byrjun…Lesa meira

true

Lengjubikarinn fór á fullt um helgina

Það var nóg að gera hjá Vesturlandsliðunum um helgina í Lengjubikarnum í knattspyrnu. Skagamenn léku fyrir norðan eftir að hafa unnið stórsigur í fyrsta leik og lið Víkings Ólafsvíkur og Kára og lið ÍA kvennamegin hófu keppni í sínum deildum. KA og ÍA mættust í Boganum á Akureyri á föstudagskvöldið í A deild karla og…Lesa meira

true

Séra Laufey Brá sett í embætti sóknarprests

Í gær, sunnudaginn 18. febrúar, var sr. Laufey Brá Jónsdóttir sett í embætti sóknarprests í Setbergsprestakalli á Snæfellsnesi. Sr. Gunnar Eiríkur Hauksson prófastur setti sr. Laufeyju Brá í embætti og saman þjónuðu þau ásamt sr. Aðalsteini Þorvaldssyni og sr. Ægi Erni Sveinssyni. Kirkjukór Grundarfjarðarkirkju söng undir stjórn Lindu Maríu Nielsen og organistanum Þorkeli Mána Þorkelssyni.…Lesa meira

true

Myndamorgunn í Safnahúsi Borgarfjarðar

Margt var um manninn í Safnahúsi Borgarfjarðar síðastliðinn föstudagsmorgun. Þar var kominn saman hópur af fólki til að skoða ljósmyndir Einars Ingimundarsonar, en gestir myndamorgna eru beðnir um að nafngreina fólk, staði og/eða viðburði sem finna má á ljósmyndum Einars. Næsti myndamorgunn verður föstudaginn 1. mars næstkomandi.Lesa meira

true

Framkvæmdir hafnar í Víkurhverfi í Stykkishólmi

Sveitarfélagið Stykkishólmur auglýsti nýverið 12 nýjar íbúðarhúsalóðir í Víkurhverfi. Gatnagerð á svæðinu stendur nú yfir og á henni að vera lokið um miðjan júní 2024. Lóðirnar eru í mikilli nánd við náttúru en unnið er nú að því að merkja gönguleið meðfram framkvæmdasvæðinu þannig að gangandi vegfarendur komist leiðar sinnar á Grensás og að sjósundsaðstöðunni…Lesa meira

true

Tuttugu menningartengd verkefni hlutu styrk

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar fimmtudaginn 15. febrúar var samþykkt úthlutun menningar- og safnanefndar til menningartengdra verkefna árið 2024 en alls var úthlutað 3.520.000 króna til eftirfarandi 20 verkefna: Leiklistarsmiðjur hjá Verkstæðinu menningarmiðstöð, Sara Blöndal – kr. 450.000. Fræðslu- og minningarsýning um Gutta, Helena Guttormsdóttir – kr. 300.000. Leiksýning leiklistarklúbbsins Melló, Nemendafélag FVA – kr. 300.000.…Lesa meira

true

Næsti tilboðsmarkaður í mjólk

Markaður fyrir greiðslumark mjólkur verður haldinn 1. apríl næstkomandi. Að hámarki er hægt að óska eftir 50.000 lítrum til kaups á hverjum markaði, eða alls 150.000 lítrum árlega. Tilboðum um kaup og sölu greiðslumarks skal skila rafrænt á afurd.is en opnað hefur verið fyrir tilboð. Tilboðsfrestur rennur út á miðnætti 10. mars nk. „Vakin er…Lesa meira

true

Lögregla varar við að fara út á ótraustan ís

Í gær barst Lögreglunni á Vesturlandi tilkynning um fólk út á ísnum í Borgarvogi við Borgarnes. „Er þetta í fjórða skiptið í vetur sem lögreglu berast tilkynningar um fólk eða börn á ís við Borgarnes. Mikill hætta getur skapast ef farið er út á ísinn og lítum við þetta mjög alvarlegum augum. Vill lögregla benda…Lesa meira