
Ísilögð ströndin við Borgarnes. Ljósm. úr safni/ Guðrún Jónsdóttir
Lögregla varar við að fara út á ótraustan ís
Í gær barst Lögreglunni á Vesturlandi tilkynning um fólk út á ísnum í Borgarvogi við Borgarnes. „Er þetta í fjórða skiptið í vetur sem lögreglu berast tilkynningar um fólk eða börn á ís við Borgarnes. Mikill hætta getur skapast ef farið er út á ísinn og lítum við þetta mjög alvarlegum augum. Vill lögregla benda foreldrum og forráðamönnum barna sérstaklega á að ræða við börn sín,“ segir í tilkynningu.