Fréttir

true

Búið að samþykkja sumarleyfi leikskóla

Á fundi skóla- og frístundaráðs Akraneskaupstaðar síðasta miðvikudag var tekið fyrir erindi frá leikskólastjórum og fjallað um sumaropnun leikskólanna í sumar. Skóla- og frístundaráð samþykkti að sumarleyfi leikskólanna sumarið 2024 verði fjórar vikur og að lokað verði frá 8. júlí til og með 2. ágúst. Ráðið féllst einnig á beiðni leikskólastjóra um að til framtíðar…Lesa meira

true

Fáir á netaveiðum sem þó gefa vel

Fáir netabátar hafa á þessari vertíð verið gerðir út frá Snæfellsbæ. Það er annað en áður var þegar tugir báta voru gerðir út á netaveiðar og komu alls staðar af landinu til veiða á Breiðafirði og hafnir fullar af netabátum. En því miður virðist þessi veiðiskapur vera að detta út. Aflabrögð hafa verið mjög góð…Lesa meira

true

N1 og Tesla í samstarf um fjölgun hraðhleðslustöðva

N1 og Tesla hafa undirritað rammasamning sem felur í sér áform um uppbyggingu hraðhleðslustöðva við þjónustustöðvar N1 víðs vegar um landið. Markmið N1 með samningsgerðinni er að auka verulega þjónustu við notendur rafbíla. Uppbygging Tesla verður við eftirfarandi þjónustustöðvar N1: Borgarnesi, Blönduósi, Egilsstöðum, Vík, Ísafirði, Hringbraut, Kirkjubæjarklaustur, Hveragerði, Keflavík og Ártúnshöfða. Nú þegar eru hleðslustöðvar…Lesa meira

true

Ráðherra gerir kröfur um eignarhald eyja og skerja

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur, fyrir hönd íslenska ríkisins, afhent óbyggðanefnd kröfur um þjóðlendur á svæði 12 sem nefnist „eyjar og sker“ og tekur til landsvæða innan landhelginnar en utan meginlandsins. „Um er að ræða sautjánda og síðasta svæðið sem óbyggðanefnd tekur til meðferðar,“ segir í tilkynningu frá Óbyggðanefnd sem nú kallar eftir kröfum þeirra sem…Lesa meira

true

Sáralítið mælist af loðnu

Önnur yfirferð loðnumælinga á árinu er nú langt komin með þátttöku þriggja uppsjávarveiðiskipa. Eftir stendur að fara yfir Vestfjarðamið en Heimaey og Polar Ammassak þurftu frá að hverfa þaðan um helgin vegna veðurs. Áætlað er að yfirferðinni ljúki á miðvikudaginn. Ásgrímur Halldórsson lauk við sína yfirferð úti fyrir Norðaustur- og Austurlandi um helgina. „Þótt yfirferðinni…Lesa meira

true

Skallagrímur kominn með nýjan þjálfara

Knattspyrnudeild Skallagríms í Borgarnesi hefur ráðið þjálfara meistaraflokks fyrir tímabilið í sumar. Jón Theodór Jónsson framkvæmdastjóri deildarinnar segir að 14 einstaklingar hefðu sótt um starfið og það væri búið að taka smá tíma að velja þann rétta. „Eftir viðtöl við marga mjög spennandi kosti þá stóð eftir eitt nafn, Scott Bowen. Hann er góður vinur…Lesa meira

true

Lífland og meistaradeildin endurnýja samstarfið

Meistaradeild Líflands og æskunnar var ýtt úr vör um helgina. Fyrsta mótið í deildinni fór fram í gær á Fákssvæðinu í Víðidal þar sem keppt var í fjórgangi. Í ár eru liðin ellefu, hvert með fjórum knöpum og alls eru því keppendurnir, á aldrinum 13-17 ára, 44 talsins á þeim mótum sem framundan eru. Í…Lesa meira

true

Vesturlandsliðin töpuðu öll í körfunni um helgina

Sextánda umferðin í fyrstu deild karla í körfuknattleik fór fram á föstudagskvöldið og þurftu liðin þrjú af Vesturlandi öll að þola tap. Mesta spennan var í leik Sindra og Skallagríms sem var í Ice Lagoon höllinni á Höfn þó lítið hefði bent til þess miðað við hvernig leikurinn fór af stað. Þegar fimm mínútur voru…Lesa meira

true

Gul viðvörun er til kvölds um vestanvert landið

Veðurstofufólk gefur út gula viðvörun í dag fyrir Faxaflóa og Breiðafjörð. Nú er norðaustan 13-20 m/s og skafrenningur. Hvassast er á sunnanverðu Snæfellsnesi. „Varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Líkur á versnandi akstursskilyrðum, einkum á fjallvegum,“ segir í viðvörunarorðum Veðurstofunnar.Lesa meira

true

Erlendur Samúelsson er Borgnesingur ársins

Á Borgarnesblótinu síðastliðið laugardagskvöld í Hjálmakletti í Borgarnesi var tilkynnt um hver væri útnefndur Borgnesingur ársins 2023. Er þetta í sjötta sinn sem staðið er að þessari útnefningu á Borgarnesblóti. Áður hafa Ingimundur Ingimundarson, Þorsteinn Eyþórsson, Guðrún Birna Haraldsdóttir, Guðrún Daníelsdóttir og Eiður Sigurðsson hlotnast þessi heiður. Að þessu sinni er Erlendur Samúelsson Borgnesingur ársins.…Lesa meira