
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) og Sveitarfélagið Stykkishólmur hafa komið sér saman um sameiginlega viljayfirlýsingu um fjölgun íbúða og eflingu stafrænnar stjórnsýslu í sveitarfélaginu. Fyrirhugað er að þessir aðilar vinni saman að uppbyggingarverkefni með eftirtalin markmið í huga: Í fyrsta lagi að leita leiða til að auka aðgengi að fjölbreyttum húsnæðiskosti og húsnæði með viðráðanlegan húsnæðiskostnað.…Lesa meira








